Maður tekur 400 grömm af þurrkuðum
abrikósum og sker þær í búta. Setur til hliðar. Tekur 2
appelsínur, eina sítrónu og eitt læm sem búið er að taka börkinn
af og sem mest af hinni hvítu himnu sem stundum situr eftir á ávöxtunum,
skera þetta allt í smærri bita. Það er líka gott að hafa þarna
með 1-3 gulrætur, svolítið chili, kannski engiferrót og hvaðeina
annað sem þið haldið að muni gera marmelaðið betra og meira bjartsýnishvetjandi.
Öllum þessum bitum er rennt gegnum
hakkavél eða matvinnsluvél og gumsið er síðan sett í pott áamt
ca hálfum lítra af appelsínusafa og 2 dl af vatni. Þetta er soðið
rólega í 30 mínútur. Þá er potturinn dreginn til hliðar, 350
gr af (reyr)sykri blandað vel í og suðan látin koma upp aftur og
soðið aftur í ca hálftíma. Þá er potturinn enn dreginn
til hliðar, smakkað á framleiðslunni og bætt svolitlu af sykri
í viðbót (50-100 gr) og hrært vel í öllu saman.
Þegar maður er orðinn ánægður
með bragðið er þetta sett í sultukrukkur – munið að þær þurfa
að vera vel hreinar – og lokið sett á. Hver krukka fær fallegan
miða í skærum lit með innihaldslýsingu, broskalli og dagsetningu – nema hvað.
Geymt á köldum stað.
Frábært með ristuðu brauði, gott
í bakstur og hvaðeina sem smekkurinn stendur til.
Túkallinn
hverrar krónu virði
PS. Það má líka setja chili og engifer
í heilu lagi í suðuna og veiða það svo uppúr í lokin.
Recent Comments