Margir sem gjarnan myndu vilja hafa baunir oftar á borðum eru svolítið skelkaðir að elda þær sjálfir og kaupa þær frekar í dósum. Og ástæðan er hið ógurlega loft sem myndast í þörmum neytandans og veldur honum leiðindum og ama. Til er ráð sem má nota til að komast hjá þessu en það er að sjóða með baununum svolítinn legg af kombú sem er sólþurrkaður stórþari og er seldur hér ýmist frá Japan eða íslenskur. Kombúið er veitt uppúr í lokin en það má líka borða það sér eða með baununum.
Baunir eru frekar ódýr matur, fitulítill en gefa vel af prótíni, vítamínum og steinefnum. Þær geymast vel í góðum pokum eða dósum og langur geymslutími virðist ekki hafa áhrif á mýkt eða bragðgæði þeirra. Gott er að fara í gegnum baunir sem á að sjóða og tína burtu ef skemmdar baunir eða steinar hafa slæðst með.
Það er hagstætt að sjóða t.d. hálft eða heilt kíló í einu, frysta það sem ekki á að snæða strax og síðan er hægt að nýta baunirnar á óteljandi máta. Munið bara að frysta þær í litlum skömmtum, svona rétt mátulegum fyrir hvert skipti.
Hér á landi eru nýrnabaunir, hvítar baunir, sojabaunir og kjúklingabaunir algengastar og aðferðin við að sjóða þær er ætíð sú sama.
Og svona gerum við:
Við leggjum baunirnar í bleyti yfir nótt eða ekki minna en 8–10 tíma. Þá er vatninu hellt af þeim, og baunirnar settar í góðan pott, vatni bætt við eða ca 3 bollum fyrir hvern bolla af baunum – þegar þær voru þurrar. Suðan er látin koma rólega upp, kombóið látið út í og allt soðið 30–60 mínútur. Saltið ef þið viljið. Það er gott að sjóða baunirnar ekki alveg í mauk, síst ef á að nota þær í heita rétti eða rétti sem þarf að sjóða smávegis.
Þegar baunirnar eru soðnar er aukavatni hellt af þeim og þær sem eiga að fara í frysti eru settar í litlar plastdósir og þegar innihaldið er orðið kalt er þeim komið fyrir í frystinum. Munið að merkja með dagsetningu.
Þá er að athuga hvað má gera við skammtinn sem við skildum eftir.
T.d. má gera:
HVÍTAR BAUNIR með skinku og epli
Þá er smáttskorinn laukur 1–2 stykki léttsteikt í olíu, grænt epli í litlum teningum sett út í og strax þar á eftir er hrært saman við lítilli dós af tómatkrafti og kryddi einsog timian og 1–2 negulnöglum. Stjakið þessu svolítið um pönnuna og látið hitna vel í gegn en síðan er bætt við grænmetissoði, 3–4 dl, lokið sett á og soðið í ca hálftíma. Hrærið í öðru hvoru og bætið aðeins vatni ef þetta verður of þurrt. Baununum sem mega vera 3–400 gr. er bætt við þegar líður að lokum suðunnar.
Þegar þarna er komið má alveg nota þetta sem meðlæti með kjöti eða fiski eða ofan á brauð.
EEEN, það má líka setja þetta í eldfast fat, dreifa slatta af skinku í sneiðum eða bitum og einu rauðu epli í skífum yfir. Hitað vel í gegn við 200°. Og þessi réttur stendur fyrir sínu.
Hér er gott meðlæti t.d. með kjúklingarétti:
HVITAR BAUNIR í karrí
Saxaður laukur er hitaður í olíu á pönnu með karrí að vild. Jurtasalti er stráð yfir og slatta af rjóma hrært út í og síðan er soðnu baununum bætt út í. Soðið í nokkrar mínútur.
Borið fram.
Einfalt –ekki satt?
Recent Comments