Á gamlársdag segir í Morgunblaðinu frá Jóni Vigfúsi Guðjónssyni, sjómanni frá Suðureyri sem eldaði sér refapottrétt. Jón Vigfús er veiðimaður og ákvað að prófa sig áfram með ref sem hráefni. Ég læt lýsingu Jóns Vigfúsar á refauppskriftinni fylgja hér, ef einhver vill prófa að matreiða ref:
„Síðan steikti ég kjötið á heitri pönnu, kryddaði með salti og pipar. Svissaði síðan lauk, sveppi og papriku saman við refinn og bjó til villibráðarsósu. Skellti þessu öllu út í sósuna og lét malla í 20 mínútur og úr varð þessi fíni refapottréttur sem smakkaðist vel.“ Sagði Jón Vigfús matinn góðan og hafa helst minnt á kindagúllas.
Túkallinn
hverrar krónu virði

Comments