Þó margt hafi hækkað verulega, þá er fjöldi fyrirtækja með lagera sem þarf að losa. Lagera sem þegar er búið að borga upp og geta komið hreyfingu á hlutina þegar aðrir munir á nýja genginu hreyfast ekki. Þarna eru tækifæri til þess að spara háar fjárhæðir á ónotuðum vörum.
Í dag sunnudag milli kl. 12 og 18 býður Fjölvi til bókaveislu á lager sínum að Sundaborg 3 (langa gráa húsið fyrir ofan vöruhótel Eimskipa). Þar verður hægt að kaupa nýjar og eldri bækur á allt niður í 100 krónur, auk þess sem að frí bók fylgir öllum kaupum. Þannig að ef þú hefur áhuga á góðum bókum á gjafverði ...
Ef þú veist um fleiri lagersölur og tilboð sem eru í gangi einhvers staðar í bænum, segðu þá frá þeim í kommentunum hér fyrir neðan.
Túkallinn
hverrar krónu virði

Comments