Túkallasúpan er kraftmikil og bragðgóð súpa úr ódýru hráefni. Ef þú átt von á 16 manns í mat, þá fjórfaldarðu bara uppskriftina og hún mun samt bara kosta þig örfáa þúsundkalla.
Hráefni: (miðast við fjóra)
2-3 niðurskornar gulrætur
2 niðurskornir sellerístilkar
1 laukur
2 hvítlauksrif
150 gr. pasta
2 grænmetisteningar
400 gr. niðursoðnir tómatar
50 gr. tómatpúrra
2 l. vatn
Ólífuolía
Gulrætur, sellerí og laukar svissað í ólífuolíunni á botninum í
pottinum. Tómötum,púrru, vatni og grænmetisteningum bætt saman
við. Suðan látin koma upp, pastanu svo bætt saman við og látið sjóða
eins lengi og leiðbeininganar á pastanu segja til um.
Gott er að bera þetta fram með brauði og smjöri. Ég mæli með miðvikudögum en þá er brauð á hálfvirði í bakaríinu í hverfinu mínu.
Túkallinn
-hverrar krónu virði
Ágætis súpa og örugglega "hverrar krónu virði" - hilsen fra Köben.
Posted by: Anna Stína | 8. október 2008 at 07:54