Hrekkjavaka nálgast óðfluga og nú fer hver að verða síðastur að finna sér búning. Ef þið viljið vera bæði hagsýn - og öðruvísi en allir keyptu búningarnir, þá eru hér 5 góðar hugmyndir að búningum.
1. Hvar er Valli?
Valla þekkja allir og hann er ekki svo erfitt að útbúa. Allt sem þú þarft er dúskhúfa, gjarnan rauð og hvít, og rauð/hvít röndóttur bolur. Þar sem röndóttir bolir eru í tísku ætti ekki að vera svo erfitt að finna slíkan. Restin er svo hinir ýmsu aukahlutir sem auðvelt ætti að vera að finna á hverju heimili (eða allaveganna heimili foreldra og afa og ömmu). Það er t.d. myndavél, kíkir, bakpoki, kafaragleraugu með snorkli, stafur, vatnsbrúsi í ól og annað sem þér finnst passa.
2. Rækju-nigiri
Já, hljómar flókið og er vissulega frumlegt, en alls ekki svo snúið, né dýrt. Allt og sumt sem þarf í þetta er slatti af pökkunarfrauðkúlum, gömul svampdýna, svartur eða grænn borði og appelsínugult sprey.
a) Þú tekur frauðkúlurnar og límir þar saman til að búa til grjónin. Ágætt er að líma þær t.d. á gamlan hvítan bol.
b) Því næst skerðu út dýnuna og formar hana eins og stóra rækju og spreyjar með appelsínugulu spreyi.
c) Að lokum bindurðu um með svörtum borða. Einnig er hægt að bæta við smá wasabi í hárið og engiferi sem búið er til úr filti.
3. Vélmenni
Þetta er einfaldur en skemmtilegur búningur sem getur vakið mikla lukku, sérstaklega hjá yngri kynslóðinni. Það sem þarf í þennan búning er einfaldlega pappakassi, álpappír og ýmislegt smádót í hnappa og mæla.
a) Fyrsta skrefið er að skera út göt í pappakassa fyrir hendur og höfuð. Kassann er hægt að hafa opinn í botninn. Hann er síðan þakinn með álpappír.
b) Kassinn er síðan skreyttur. Hér hefur hann verið skreyttur með tveimur geisladiskum, álbakka með borði úr gömlu raftæki og tveimur skrautkúlum. Einnig hefur verið bætt nokkrum límmiðum á og skreytingin síðan toppuð með litlum batterísljósum. En þið notið bara hvað sem þið finnið sem glitrar, pípir, blikkar eða lítur út eins og hlutur af vélmenni :)
c) Fæturnir eru búnir til úr álbarka fyrir þurrkara. Ef þú átt engan afgangs ætti að vera auðvelt að kaupa slíkan fyrir lítið fé. Hluti af barkanum var líka rifinn niður og notaður til að skreyta kassann enn frekar.
d) Höfuðið er í grunninn reiðhjólahjálmur en framan á hann er búið að líma spjald úr pappakassa þar sem klippt hefur verið gat fyrir augun. Allt er þetta síðan þakið með álpappír.
Og þá ertu komin með vélmenni. Innanundir vélmenninu er hægt að vera í hvaða fötum sem er, en ágætt er að vera með hvítar, svartar eða gráar ermar þar sem þær standa út úr kassanum.
4. Freslisstyttan
Frelsisstyttan er alltaf klassísk og þarf ekki að vera svo flókin. Hér er hugmynd að því hvernig hægt er að búa til frelsisstyttu handa dótturinni, nú eða þér sjálfri :)
a) Kjóllinn er í þessu tilfelli búin til úr gömlum fötum úr skápnum, hvítum stuttermabol, og pilsi sem er saumað saman. Áður en saumað var voru allar flíkurnar settar í bala með vatni og fatalit og hrært í til að allt fengi á sig grænan blæ. Flíkurnar tóku upp mismikinn lit sem gefur kjólnum skemmtileg blæbrigði. Til þess að fá "réttar" fellingar í kjólinn var pilsið saumað við aðra öxlina.
b) Kórónan er búin til úr ennisbandi sem á er fest frauð. Síðan eru klipptir út 7 þríhyrningar úr frauðinu til þess að búa til toppana á kórónuna og að lokum notaður litur til þess að búa til gluggana og línur í toppana.
c) Kyndillinn er í raun vasaljós, þannig að það lýsir líka :) Vasaljósið er klætt með grænu frauði og aukalag klippt til og sett efst til þess að skapa mynstrið efst á kyndlinum.
d) Eldurinn í kyndlinum er búinn til úr appelsínugulu umbúðaplasti en einnig er hægt að nota ýmiskonar föndurefni eða sellófan.
e) Að lokum er smá silfurblár augnskuggi og varablýantur notaður til að skappa "styttulegra" andlit.
Skórnir eru bara venjulegir sandalar og voila, þú ert orðin frelsisstytta :)
5. iPhone
Hver vill ekki vera iPhone í dag?
a) Finndu tvö spjöld. Mega vera pappaspjöld en ef þú getur fundið þykkari frauðspjöld þá væru þau betri. Rúnaðu hornin á þeim, málaðu þau svört og gerðu krómaðan kant með málningu eða álpappír.
b) Prentaðu út hnappana og Apple lógóið fyrir bakhliðina og límdu á. Hér eru hnapparnir:
iPhone Icons 1 - iPhone Icons 2 - iPhone Icons 3
iPhone Icons 4 - iPhone Icons 5 - iPhone Icons 6
c) Hengdu þetta yfir axlirnar á þér og vertu í svörtum fötum innanundir. Bingó - þú átt ekki bara iPhone, þú ert ORÐIN iPhone! :)
Nú, ef peningar eru ekki vandamálið, þá er hægt að taka iPhone hugmyndina skrefinu lengar og búa til iPhone búning sem virkar! Eins og þessir:
Grunnurinn í þessum búningi er 42" flatskjár sem tengdur er við iPhone síma. Einfalt og virkar!
Gleðilega hrekkjavöku :)
Túkallinn

Recent Comments