Tónlistarmaðurinn Eberg hefur sent frá sér nýtt myndband sem er mjög vel heppnað, bæði lag og mynd. Myndbandið var framleitt af Republik Film Productions í leikstjórn Árna Þórs Jónssonar. Myndataka var í höndum Erlends Cassata og framleiðandi var Ásta Briem.
Færeyingar hafa verið að geta sér gott orð sem tónlistarmenn, enda rík sönghefð í færeyskri menningu. Við þekkjum öll tónlistarfólk eins og Eivör, Brandur Enni, Teit og Boys in a band. Ný sveit, Orka, hefur verið að vekja mikla athygli á undanförnum mánuðum. Það sem gerir þessa hljómsveit einstaka er að hún spilar eingöngu á heimasmíðuð hljóðfæri, hljóðfæri sem er smíðuð úr gömlu drasli og verkfærum úr hlöðunni og sækir innblástur í þýskar iðnaðarrokksveitir eins og Einstuerzen Neubauten og frumdaga Kraftwerks.
Hljómsveitin hefur verið að ferðast um Evrópu með franska tónskáldinu Yann Tiersen sem er þekktastur fyrir tónlist sína úr frönsku myndinni Amelie. Undirritaður var staddur á tónleikum í Færeyjum í síðustu viku þar sem Orka flutti nokkur lög ásamt söngkonunni Eivöru. Flutningurinn var eitthvað sem maður þarf að upplifa á staðnum. Tónlistin, eldglæringarnar, lyktin af smergelinu, lýsingin, allt skapar þetta einstaka stemningu sem erfitt er að gera góð skil í upptökum. En þið getið fengið forsmekkin í þessari stuttu heimildamynd um hljómsveitina og hljóðfærin hér að neðan:
Orka er útgefin af Tutl plötuútgáfunni í Færeyjum og er hægt að panta diska (og stundum vinyl) með færeyskum tónlistarmönnum á vefnum þeirra.
Hjörtur
Smiðja skaparans í áskrift
Þú getur fengið reglulegar uppfærslur í tölvupósti af þessari síðu með því að skrá netfangið þitt hér að neðan. Áskriftin er ókeypis og þú getur afskráð þig hvenær sem er.
Recent Comments