Borgarastríð herjaði í Kambódíu lengi en þegar friður komst á var gríðarlegt magn af vopnum gerð upptæk. Flestum þessara vopna var eytt, en sum þeirra hafa öðlast nýtt hlutverk í höndum nema í listaháskóla í Phnom Phen, höfuðborg Kambódíu.
Verkefnið kallast PAPC eða Peace Art Project Cambodia. Verkefnið var sett af stað af listamönnunum Sasha Constable og Neil Wilford. Svipuð verkefni hafa verið gerð víðar, t.d. í Angóla í Afríku eftir stríðið þar.
Vopnin hafa verið tekin og beygð, máluð og raðað saman í hin ýmsu listaverk og húsgögn, stóla, dýr og jafnvel reiðhjól.
Hjörtur
(via Trend Hunter)








Recent Comments