Ricky Wolbrom er hönnuður í New York í Bandaríkjunum sem hannar og selur mjög sérstaka skartgripi í verslun sinni EDM Designs á Etsy. Þeir eru búnir til úr afgöngum af gömlum svissneskum úrum sem hún hefur sankað að sér í gegnum tíðina. Úr þessum hlutum, sem sumir líta út fyrir að taka marga daga í samsetningu vegna þess hve flókir þeir líta út fyrir að vera, smíðar hún svo hringi, ermahnappa, eyrnalokka og fleira skart.
Skartgripirnir eru í svokölluðum Steampunk stíl sem kom fram í kringum 1980 og gengur út á að tileinka sér útlit úr vísindaskáldsögum 19. aldarinnar eins og sögum H.G. Wells og Jules Vernes. Þessir skartgripir geta líklegast alveg fallið inn í það.
Hjörtur
(via Trendhunter)




Recent Comments