Nýsköpunarverðlaun Innovit voru afhent við hátíðlega athöfn í Ráðhúsi Reykjavíkur síðastliðinn laugardag. Margar góðar hugmyndir voru tilnefndar. Úrslitin voru sem hér segir:
1. verðlaun - Gulleggið:
Controlant - tæki sem ætlað er að fylgjast með fiski í flutningi til að tryggja að full gæði haldist allan flutningstímann. Með því er hægt að ná betri nýtingu á fiskafurðum og hærra verði.
2. verðlaun - Silfureggið:
Risk ehf. - hættureiknivél sem metur sjálfvirkt áhættu sykursjúks einstaklings á augnsjúkdómum og sjónskerðingu vegna sykursýki.
3. verðlaun - Bronseggið:
Responsible surfing - hugbúnaður til þess að fylgjast með og hafa stjórn á notkun unglinga á netinu í gegnum farsíma.
Verðlaunin samanstanda af peningaverðlaunum og frírri ráðgjöf sem á vafalaust eftir að koma þessum fyrirtækjum vel í sókn sinni. Smiðja skaparans óskar þessum fyrirtækjum til hamingju með sigurinn sem og öllum þeim sem komust í úrslit.
Þau 7 fyrirtæki sem komur í úrslit auk þeirra sem áður eru nefnd eru:
Home Sweet Home - áætlun til að auðvelda eldra fólki að búa lengur heima.
Lifandi ráðgjöf - gerð kennsluefnis fyrir unglinga í vímuefnaforvörnum.
Mammon - hugbúnaður til að hjápa heimilum að öðlast yfirsýn yfir heimilisbókhaldið.
MindGames - tölvuleikir sem hafa það að markmiði að hreinsa hugann, auka einbeitingu og örva sköpunargleði.
Ríðum heim til Hóla - sögusýning á íslenskum hestum.
Tæknibrú - tæknilausn til þess að brúa stafræna bilið milli menningarhópa.
Vigur - námsefni í stærðfræði sem nýtir þá möguleika sem margmiðlun býður upp á til að gera stærðfræðina aðgengilegri og auðskiljanlegri.
Hjörtur

Recent Comments