Þetta er Travis Malloy, snilldar listamaður sem "framkvæmir" hér listaverk á sviði. Tónlistin undir á myndbandinu er David Crowder Band - "Glory of it All". Ekki gefast strax upp á myndbandinu, það er þess virði að horfa á það til enda :)
Ef þið hafið náð að sjá Biophilia tónleikana hjá Björk, hafi þið vafalítið tekið eftir trommaranum hjá henni, Manu Delago, sem er snillingur á slagverkinu. En honum er margt til lista lagt og hér í myndbandinu fyrir neðan má sjá hann teikna sjálfsmynd. Og þetta er ekkert venjulegt listaverk!
Kseniya Simonova hefur farið eins og eldur í sinu um YouTube og netheima eftir að hún sigraði hæfileikakeppni í Úkraínsku sjónvarpi. Hæfileikar Kseniyu felast í frásagnagáfu hennar þar sem hún segir myndrænar sögur með sandi, teiknaðar á baklýsta glerplötu við undirleik dramatískrar tónlistar.
Í þessu myndbandi minnist hún þess þegar Úkraína féll undir Þjóðverja í seinni heimstyrjöldinni með átakanlegum myndum sem hún skapar og eyðileggur og umbreytir í nýtt listaverk hvert á fætur öðru. Einstök listsköpun hér á ferð. Lokaorðin sem hún skrifar með sandinum eru "þú ert ávallt nærri".
Líkamsmálun nær sjaldnast út fyrir andlitið hér á landi, en er þó stunduð sem listgrein af sumum. Craig Tracy í New Orleans er mikill listamaður þegar kemur að líkamsmálun. Líkaminn sem er málaður er oft aðeins hluti af listaverkinu. Við látum nokkur dæmi fylgja með hér að neðan:
Paul Smith var einstakur listamaður og töfraði fram hvert listaverkið á fætur öðru þegar hann settist við ritvélina. En það voru ekki ljóð, sonnetur eða skáldsögur sem hann töfraði fram á pappírnum, heldur málverk. Sum svört en önnur jafnvel í þremur litum.
Þrátt fyrir fötlun sína, en Paul Smith var spastískur, gat hann gert ótrúlega nákvæmar eftirlíkingar af þekktum listaverkum og ljósmyndum. Skoðið afraksturinn í þessu myndbandi sem tekið var upp í Oregon í Bandaríkjunum árið 1976:
Hjörtur
ps. Ertu ekki örugglega orðinn fan á Facebook? =>
Smiðja skaparans í áskrift
Þú getur fengið reglulegar uppfærslur í tölvupósti af þessari síðu með því að skrá netfangið þitt hér að neðan. Áskriftin er ókeypis og þú getur afskráð þig hvenær sem er.
Recent Comments