Drögum út nýjan vinningshafa á hverjum degi fram að jólum. Ert þú ekki örugglega orðinn fan á Facebook?
Það er jólalegt um að lítast í dag, á fyrsta í aðventu. Hvítur snjór yfir öllu og fólk í óða önn að setja upp jólaljósin. Sumir setja upp fleiri jólaljós en aðrir en fáir ef nokkrir hafa sett upp jafnmörg jólaljós og Osborne fjölskyldan í Little Rock í Arkansas. Það er augljóslega hægt að gera mjög jólalegt þó enginn sé snjórinn.
Þegar fjöldi ljósanna var kominn upp í milljón ljós var nágrönnunum nóg boðið og kærðu Osborne fjölskylduna. Þau gáfust hins vegar ekki upp og keyptu hús nágrannana og skreyttu þau líka og voru ljósin fljótlega komin yfir 3 milljónir. Þetta var farið að valda miklum vanda í öllu hverfinu vegna mikillar umferðar fólks sem var að koma og skoða ljósin auk ljós og hávaðamengunar. Á endanum kom Disney til bjargar og keypti ljósasýningu Osborne fjölskyldunnar og setti hana upp í Disney Studios í Orlando, Florida.
Nú er hægt að sjá ljósasýninguna á hverjum jólum í Disney. Þeir hafa haldið áfram í anda Osborne og bætt við um 2 milljónum ljósa. Ég get deilt með ykkur einu Disney leyndarmáli líka. Á hverju ári er falinn fjólublár köttur í jólaskreytingunum en kötturinn er úr hrekkjarvökuskreytingum Disney. Þannig að ef þið farið og upplifið jólastemninguna í Disney, þá getið þið haft augun opin fyrir honum líka.
Spurning hvort þetta verði einhverjum innblástur hér á landi í skreytingunum fyrir þessi jól.
Hjörtur
Drögum út nýjan vinningshafa á hverjum degi fram að jólum. Ert þú ekki örugglega orðinn fan á Facebook?






Recent Comments