Hönnun á heima alls staðar. Í listamannahverfinu Soho í New York er að finna listamann og reiðhjólasmið sem virkilega leggur metnað og hugsun í reiðhjólin sín út frá fagurfræðilegum sjónarmiðum. Reiðhjólin eru í raun skúlptúrar. Josh Hadar heitir nytjalistamaðurinn sem smíðar þessa nýstárlegu járnhesta.
Meðal þess sem Josh notar í reiðhjólasköðun sinni eru málmar eins og nikkel, gull og ál, gler og í hnakkana notar hann álroð (það er að segja af fiskinum). En hjólin eru ekki fyrir hvern sem er þar sem verðimiðinn á þeim er á bilinu frá 12.000 dollurum til 35.000. Ekki alveg reiðhjólið fyrir meðalnámsmanninn en þú færð það alveg sérsniðið fyrir þína stærð.
Hjörtur
(via Trendhunter)














Recent Comments