Design 21 stendur fyrir keppni um hönnun á lógó fyrir "Stories from the Field: The United Nations Documentary Film Festival". Á kvikmyndahátíðinni eru sýndar heimildamyndir sem Sameinuðu þjóðirnar eða stofnanir þeim tengdar hafa látið búa til og byggja á einum eða fleirum af þeim atriðum sem tiltekin eru í Árþúsunda-þróunar-markmiðum Sameinuðu þjóðanna (UN Millenium Development Goals).
By 2015 all 189 United Nations Member States have pledged to eradicate extreme poverty and hunger, achieve universal primary education, promote gender equality and empower women, reduce child mortality, improve maternal health, combat HIV/AIDS, malaria and other diseases, ensure environmental sustainability, [and] develop a global partnership for development.
Stofnunin er að leita að lógó sem mun standa fyrir hátíðina frekar en stofnanirnar sem standa að baki henni. Lógóið mun verða notað á öllu efni hátíðarinnar, dagskrám, veggspjöldum, dreifibréfum, bréfsefni, vef og annars staðar. Það verður jafnframt notað til að marka hliðarhátíðir sem verið er að skipuleggja.
Skilafrestur er til 26. nóvember 2007. Nánari upplýsingar um keppnina er að finna hér.
Hjörtur
(via Core77.com)
Sendu vini þessa grein sem tölvupóst

Recent Comments