Í Leifsstöð á Keflavíkurflugvelli stendur nú yfir sýning á nýstárlegum lömpum, Ugga lömpum. Þessir sérstöku lampar eru gerðir úr þurrkuðum þorski og eru því mjög þjóðlegir, á sinn nýstárlega hátt.
Lamparnir sem eru hugverk Fanneyjar Antonsdóttur og Daggar Guðmundsdóttur hafa vakið mikla athygli og verið sýndir á sýningum víða um heim, þar á meðal Guggenheim safninu í Berlín, FNAC í París, The National Museum for Women in Arts í Washington DC og the International Design Biennale í St. Etienne.
Þorsklamparnir eru allir handunnir. Fiskarnir eru teknir og roðflettir. Roðið er síðan fært í upprunalega mynd og þurrkaðir. Sjálfur fiskurinn heldur áfram í gegnum vinnsluferlið og endar sem fiskibolla á fjarlægum diski.
Á sýningunni í Leifsstöð er búið að koma fyrir 25 þorsklömpum og mun hún standa yfir þar til 8. september. Nánari upplýsingar um Ugga lampana er að finna á uggi-lights.com.
Hjörtur






































Recent Comments