Eins og þið eflaust vitið eru 20% af hollensku landi fyrir neðan sjávarmál. Þetta er ákveðið áhyggjuefni þegar ljóst er að hitastig jarðar fer hækkandi, jöklar bráðna og yfirborð sjávar hækkar. Hvað verður þá um Holland? Fer allt Holland á kaf?
Hollendingar hafa ný sýnt það að þeir eru ekki hræddir við vatn. Í stað þess að líta á hækkandi vatnsyfirborð sem ógn, þá er það bara nýtt tækifæri til nýsköpunar og framþróunar. Hollendingar eru farnir að þróa hús sem fljóta og á teikniborðinu eru garðar, vegir og heilu þorpin sem geta flotið ef til flóða kemur.
Húsin eru byggð á sérstökum undirstöðum sem eru flekar á stultum. Stulturnar eru þannig gerðar að þær geta lengst ef vatnsyfirborðið hækkar og húsið fer að fljóta. Allar raflagnir og niðurföll eru hönnuð með þetta í huga. Ofan á flekanum er svo hægt að byggja hús, setja upp garða, sundlaugar eða annað.
Í Amsterdam er nú verið að hanna heilt hverfi með um 12.000 íbúðum sem er byggt á þessari hugmynd. Hluti af hverfinu er byggt út í vatn og allt hverfið er þannig að það getur flotið ofan á vatni.
"Núna er rétti tíminn. Út af loftslagsbreytingum, vegna sögu Al Gore, vegna New Orleans, vegna fjármagnsins sem er í boði, eru allir að bíða eftir nýjum uppfinningum" segir Olthuis, einn af arkitektunum á bak við verkefnið.
Hjörtur
(þú getur lesið meira á npr.org)








Recent Comments