MEERA húsið ögrar hömlum umhverfisins með því að vera margþætt græn vin í þröngu stórborgarumhverfi. Staðsett á eyjunni Sentosa í Singapore þurftu hönnuðurnir að finna leiðir til að skapa grænt vistvænt umhverfi á örlitlum byggingarbletti með nágrannana þétt upp við húsið. Til að skapa næði voru reistir veggir meðfram lóðunum til hliðar við húsið en um leið reynt að skapa opið og bjart hús með aðlaðandi náttúrulegu umhverfi.
Húsið er fjögurra hæð og ofan á hverri hæð er þakgarður, ekki bara með grasi eða lyngi heldur jafnvel heilu trjánum og runnunum.
Í miðju hússins er stigaop sem hefur það hlutverk að hleypa bæði birtu og sjávargolunni niður á allar hæðir hússins.
Lýsing spilar líka stórt hlutverk í að skapa réttu stemninguna bæði inn í húsinu og utan þess þegar skyggja tekur. Takið eftir því hvernig undirlýstur gróðurinn býr til alveg ný munstur í loft og á veggi með skuggum sínum.
Sundlaugin verður á sama hátt sterkur hluti af heildinni með því að hafa heilan vegg á neðstu hæðinni sem hluta af sundlauginni sjálfri. Sundlaugin er ekki hefðbundin flísalögð laug heldur þaking fjörugrjóti sem gefur henni sterkan náttúrulegan blæ og skapar þannig einstakt útsýni og upplifun af umhverfinu innan úr húsinu.
Það voru GUZ Architects sem hönnuðu húsið. Ljósmyndirnar tók Patrick Bingham Hall.
Hjörtur
(via Freshome)

Comments