Skemmtikenningin gengur út á það að hægt sé að fá fólk til að gera það sem það forðast að gera, eða nennir ekki að gera, með því einfaldlega að gera það svolítið skemmtilegra. Eins og Mary Poppins orðaði það: "A spoon full of sugar makes the medicine go down ...".
Já, svona má gera lyftur og rúllustiga atvinnulaus. En þetta er ekki eina tilraunin í "rolighetsteorin". Þau gerðu líka tilraun með flöskutunnu þar sem fólk gat skilað tómum flöskum.
Yfir hundrað manns losuðu sig við flöskurnar í þennan gám á einu kvöldi á meðan einungis tveir fóru í hefðbundinn gám sem var skammt frá. Sem sagt, ef þú þarft að fá einhvern til að gera eitthvað leiðinlegt, gerðu það þá skemmtilegt! Eitthvað sem dönskukennarar, tannlæknar og skattframtalshönnuðir geta haft í huga ;)
Hjörtur

Comments