Í Aceh í Indónesíu hefur verið reist umdeilt safn til virðingar við þá sem létu lífið í flóðbylgjunni á öðrum degi jóla 2004. Það sem er umdeilt við safnið er kannski ekki safnið sem slíkt, heldur hvort réttlætanlegt sé að eyða hundruðum milljónum króna í að reisa slíkt safn á meðan þúsundir eru enn heimilislausir eftir flóðbylgjuna.
Hvað sem því líður er arkitektúrinn eftirtektarverður og sérstæður. Höfundur hússins er indónesískur arkitekt, Ridwan Kamil. Safnið er er að mestu leyti úr gleri og er að utan í laginu eins og stór flóðbylgja. Að innan er fjöldi lítilla fossa sem gefa húsinu mjög sérstaka stemningu, sambland af undarlegri fegurð en á sama tíma er undirliggjandi hin ógnvænlega eyðilegging sem vatnið getur fært með sér.
Á safninu er að finna "flótta hæð" til þess að komast upp úr flóðhæð, og þar er líka veggur sem á verða letruð nöfn allra þeirra er létust í flóðbylgjunni. Meðal sýninga á safninu er rafknúið líkan sem sýnir jarðskjálftan sjálfan í Indlandshafi sem sendi hina 10 metra háu flóðbylgju yfir eyjuna, ljósmyndir frá hörmungum og sögur eftirlifenda.
Hjörtur
(via TrendHunter)

Comments