Í þúsundir ára hafa menn verið að velta því fyrir sér hvernig Stonehenge í Bretlandi var reist. Með bara steinaldartækni tókst mönnum fyrir 4.000 árum síðan að hífa steinblokkir sem vega mörg þúsund kíló upp í nokkurra metra hæð og koma þeim fyrir ofan á sportreistum steinblokkunum.
Wally Wallington er byggingaverkamaður í Kanada sem telur sig hafa leyst gátuna um hvernig Stonehenge var byggt. Og til þess að sanna það, þá er hann að reisa sitt eigið Stonehenge í bakgarðinum heima hjá sér, einn síns liðs og með handafli eingöngu - að viðbættu hugviti. Uppáhaldshjálpartólið: þyngaraflið! Dásamlega einfalt.
Þetta er ekki flókið. Maður hálfpartinn skammast sín fyrir að það hafi tekið mannkynið mörg þúsund ár að átta sig á þessari einföldu lausn. Það þarf oft ekki mikið til.
Hjörtur
(via Gunnar Gunnarsson)

Lélegt
Posted by: .... | 9. október 2009 at 16:56
þetta er 10 ára gamalt videó
Posted by: jonas | 9. október 2009 at 19:33