Nú geta hönnuðir, frumkvöðlar og annað skapandi fólk leigt sér aðstöðu í Smiðju skaparans sem er til húsa á þriðju hæð að Bæjarhrauni 22. Innifalið í leigunni er þráðlaust internet, fundaraðstaða og heimasíða undir þessum vef ásamt ókeypis ráðgjöf um hvernig þú getir komið þér á framfæri á Internetinu.
Fyrir nánari upplýsingar, hafið samband við Hjört í s. 6171819 eða hjortur (at) scope (punktur) is.

Comments