Þegar þú hefur ekið á dekkjunum þínum í nokkur ár, er kominn tími til að fá sér ný. Spurningin er þá hvað verði um gömlu dekkin. Víða er þeim safnað saman í gríðarstór dekkjafjöll og ef kviknar í slíkum fjöllum spúa þau eiturefnum út í andrúmsloftið án þess að við nokkuð verði ráðið.
Carl Menary hefur hannað athygliverð sæti eða bekki sem eru búin til úr endurunnum hjólbörðum. Í þessu tilfelli er afurðin trú uppruna sínum og augljóst að um hjólbarða sé að ræða. Bekkina má nota hvort sem er innan dyra eða utan enda hafa vatn og vosbúð engin áhrif á sætin.
Carl Menary kallar þessa hugvitsamlegu endurnýtingu á hjólbörðum "Re-tyre".
Hjörtur
(via Yankodesign)


Comments