Nereus er sæþota sem þú getur skemmt þér tímunum saman á án þess að eyða krónu í bensín. Nereus er nefnilega vindknúinn. Sæþotan er fest í stóran flugdreka sem dregur hana áfram og síðan stýrirðu þotunni eftir haffletinum með fótstigum. Þú getur jafnvel kafað á henni þar sem flugdrekinn dregur hana áfram á meðan þú ert ofan í vatninu. Þegar kafað er á sæþotunni eru notuð handföng til þess að stýra uggum neðan á þotunni.
Þessi sérstaka sæþota er hugverk Mathias Koehler.
Hjörtur
(via Trendhunter)




Comments