Vatn er undirstaða alls lífs og tilefni átaka víða um heim. Í deilu Palestínumanna og Ísraela skiptir vatn miklu máli því aðgangur að ferskvatni er mjög takmarkaður í þeim heimshluta.
Phu Hoang arkitektastofan í New York lagði fram nýstárlega tillögu sem leyst gæti hluta af þeim pólitíska, efnahagslega og vistfræðilega vanda sem blasir við íbúum svæðisins. Um er að ræða þrjár tilbúnar eyjar í Dauðahafinu sem bjóða upp á dægradvöl, ferðamannaiðnað, orkuframleiðslu og vatnsframleiðslu.
Eyjarnar þrjár myndu tilheyra hlutlausu svæði utan við lögsögu nágrannaríkjanna. Ein eyjan er hugsuð til vatnsframleiðslu með sólartjörnum, sérstökum búnaði sem vinnur vatn úr rakanum í loftinu, vatnshreinsitönkum og hreinsibúnaði. Hinar eyjarnar tvær eru annars vegar eyja til framleiðslu sólarorku, bæði til eigin nota og til útflutnings og svo fyrir ferðamenn.
Hugmyndin hefur fengið mikla athygli enda nýstárleg hugmynd hér á ferð. Það er hins vegar auðvelt að ímynda sér að erfitt sé að fá samstöðu ríkjanna um eitthvað eins og þetta, eins og með flest annað sem þjóðirnar reyna að mynda samstöðu um. En mjög áhugaverð hugmynd engu að síður.
Hjörtur
(via Inhabitat)






Set your own life easier get the credit loans and all you require.
Posted by: ErickaGREER21 | 21. maí 2011 at 16:11