Abod húsin eru lítil, fjöldaframleidd hús sem eru hugsuð fyrir fátækustu svæði heims. Þau eru eins og braggi í laginu eða A en inni í boganum er búið að koma fyrir svefnlofti. Neðri hæðin er því fyrir eldhús og íveru á meðan milliloftið er til þess að sofa á.
Húsin eru fjöldaframleidd og allt sem þarf til þess að smíða húsið kemur í einum kassi, þar með talið verkfærin tvö sem þarf til það setja það saman, skrúfjárn og síll. Húsin eru þannig hönnuð að hægt er að senda þau af stað með litlum fyrirvara og í miklu magni, sem gera þau jafnframt að fýsilegum kosti sem húsnæði á neyðarsvæðum. Það á að taka fjóra menn aðeins einn dag að setja saman hvert hús.
Grunnflöturinn er 10x12 fet (3,3x4 metrar) en hægt er að bæta við öðru húsi til þess að stækka það eða teygja á boganum til að ná stærri grunnfleti. Verð húsanna er ekki nema 1.500 dollarar (um 120.000) og endingartíminn er áætlaður 20-30 ár. Það þýðir að fjölskyldur geta fengið örlán til þess að greiða fyrir húsin og eignast sómasamlegan íverustað.
Hægt er að fá ýmis konar gafla með gluggum, hurðum, verslunargluggum o.fl. Hægt er að lesa meira um þessi Abod húsin frá BSB Design hér.
Hjörtur



Comments