Efnt var til hugmyndasamkeppni um hvernig væri hægt að bæta móttöku- og veisluaðstöðu í Eiffelturninum í tilefni af 120 ára afmæli turnsins. Sigurvegarinn var Serero arkitektastofan sem kom fram með nýstárlega hugmynd.
Svæðið efst í turninum, sem er um 280 fermetrar að stærð, verður stækkað um 300 fermetra með því að bolta kevlar vængi utan á núverandi svalir. Með því stækkar svæðið til muna og gestir geta betur notið útsýnisins allan hringinn í kringum turninn. Ég veit samt ekki hversu mikið ég gæti notið þessarar stækkunar. Mér finnst nógu erfitt að fara upp í turninn eins og hann er þó ég væri ekki að vaða út á einhverjar risastórar plastsvalir.
Stækkunin er aðeins tímabundin og engar varanlegar breytingar verða gerðar á þessu sköpunarverki Gustave Eiffel.
Hjörtur
(via Yankodesign)



vona samt að þetta verði ekkki tekið niður.... svona í minningu gustave eiffel
Posted by: aron | 23. mars 2008 at 02:04
Átti ekki Eiffell turnin sjálfur bara að vera tímabundið yfir einhverja EXPO sýningu?
Afhverju ætti endurhönnunin einhvað að fara.... víst þetta er bæði tímabundið?
Posted by: Kristinn | 27. mars 2008 at 19:13