Skoðaðu myndirnar vel. Mjög vel. Nei, ennþá betur. Smelltu á þær og skoðaður þær stórar. Þetta er allt MATUR!
Fjöllin eru úr brauði, vatnið úr fiski, bátarnir úr baunabelgjum, kerrudekkin úr sveppum, dropasteinarnir úr gultrótum og gluggatjöldin úr lasagna. Þessar ótrúlega vel unnu landslagsmyndir úr mat eru hugverk Tanushu, rússneskrar listakonu sem hefur skapað heilan heim með því að mynda mat í alveg nýju samhengi. Ég klappa fyrir Tanushu. Þetta eru stórfenglegar myndir.
Hjörtur
via Trendhunter)
Þið getið skoðað fleiri myndir á blogginu hennar Tanushu.

Comments