Hefur þig langað til þess að sjá öll undur veraldar? Hvernig væri nú að afreiða þetta allt í einni ferð? Eða bara flytja þangað?
Nú á að fara að byggja borg sem inniheldur Pýramídana í Gísa, Eiffelturninn, miðborg Feneyja, skakka turninn í Písa, Kínamúrinn og fleira í fullri stærð og rúmlega það. Þessi borg mun slá Las Vegas út. Og gettu hvar hún á að vera ... Dubai!
Borgin er í laginu eins og fálki og inniheldur helstu undur veraldar. Þaðan kemur nafnið. Þú getur séð meira á myndbandinu hér að neðan:
Hjörtur
Ég er einmitt að flytja þangað... =)
Posted by: Ásta | 7. júlí 2008 at 18:37