
Ólíkt flestum öðrum skýjakljúfum sem við höfum tekið til umfjöllunar hér á síðunum, þá er þessi ekki í Sameinuðu arabísku furstadæmunum og ekki einu sinni í New York. Þessi skýjakljúfur er staðsettur í Brussel í Belgíu.
Turn Dexia bankans í Brussel er með 4.200 glugga sem hver og einn er útbúinn með LED- ljósum. Þessum ljósum er síðan hægt að stýra með fjarstýringu þannig að í raun er turninn eitt risastórt sýningaskilti.
Frá því að lokið var við húsið í lok síðasta árs, hafa verið stöðugar ljósasýningar síðan. Þið getið séð sýnishorn hér að neðan.
Hjörtur
(via Trendhunder)

ehm.. ætli fólkið inn í íbúðunum/skrifstofunum verði ekki fyrir eh áreiti útaf þessu? ég held að ég myndi ekki þola svona mikið blikk í glugganum hjá mér :/
Posted by: Bosikallinn | 6. desember 2007 at 13:18
Kannski er þetta bara aðferð Dexia bankans til að minnka óþarfa yfirvinnu ?
Posted by: Hjörtur Smárason | 6. desember 2007 at 13:29
Þetta er líklega bara í gangi á nóttunni þegar þetta sést almennilega. Ekki á daginn þegar fólk er í vinnu.
Posted by: Bjartur | 6. desember 2007 at 17:05