Hefur þig dreymt um að fara í siglingu á lúxusskemmtiferðaskipi með sundlaug, spa, góðum veitingastöðum og vel búnum svítum? Hvernig væri að gera það á skemmtiferðaskipi sem flýtur um himininn, með útsýni yfir fjöll og firnindi?
Hönnuðirnir Tino Schaedler og Michael J. Brown hafa útfært þennan draum nánar og hannað Stratocruiser skemmtiloftskipið. Stratocruiser er nútímaútgáfa af loftskipum fyrri tíma. Það er knúið helíum sem geymt er í sérstökum tönkum í stað vetnis eins og Hindenburg, sem við vitum öll hvernig fór fyrir. Skrokkurinn er smíðaður úr kolefnistrefjum.
Stratocruiserinn gerir út á lúxus. Um borð eru svítur, gourmet veitingastaður, spa, sundlaug, nuddstofur og meira að segja klifurveggur og teygjustökkpallur. Í miðju skipsins er op með hringstiga til að komast á milli hæða og inn á svíturnar.
Í Stratocruisernum rennur skemmtiferðaskipið saman við hugmyndir Richard Branson um geimferðalög. Hugmyndin er að hinn veraldavani ferðalangur geti valið um rólega, afslappandi og endurnærandi ferðamáta í stað hefðbundinna stressflugleiða. Hér er hægt að njóta styttri ferðalaga á heilbrigðan hátt og njóta um leið frábærs útsýnis yfir borgir og skóga, vötn og fjöll.
Hjörtur
(via Trendhunter.com)




Swich to wordpress, make your blogger nicer. -My 2 cents
Posted by: rc helicopter | 7. desember 2011 at 17:18