Það hefur verið vaxandi "trend" að selja íbúðir á skemmtiferðaskipum sem sumarleyfisíbúðir. En nú hefur fyrirtæki í Bandaríkjunum tekið þetta skrefinu lengra og býður upp á íbúðir um borð í fljótabát sem siglir upp og niður stórfljót Bandaríkjanna. Þetta eru engir venjulegir fljótabátar, heldur heilar borgir sem sigla á yfir 10.000 km löngu vatnakerfi frá Mexíkóflóa og inn í mið Bandaríkin til Chicago og upp til St. Paul.
Báturinn sem ber nafnið Marquette er 200 metra langur og 30 metra breiður og gert er ráð fyrir 350 íbúum um borð í bátnum ásamt 30 áhafnarmeðlimum. Um borð eru veitingastaðir, leikhús, kvikmyndahús, verslanir, bókasafn, líkamsræktarstöð, sundlaug o.fl. Hugmyndsmiðurinn hefur sjálfur búið í 19 ár á floti og sá hversu margir horfðu öfundaraugum á þennan lífsstíl hans. Þannig kviknaði hugmyndin að þessum bát þar sem eftirlaunaþegar geta sest að og upplifað æskudraumana um ævintýralegt líf á fljótunum þar sem maður vaknar á nýjum stað á hverjum morgni.
Í borgunum þar sem báturinn stoppar er síðan boðið upp á bíla og reiðhjól til að komast áfram leiðar sinnar, ferðir á golfvelli, veitingastaði og annað sem heillar. Íbúðirnar eru af ýmsum stærðum og munu kosta á bílinu 10-30 milljónir króna.
Hjörtur
(River Cities via Trendhunter)
ps. Viltu fá greinar Úr smiðju skaparans í ókeypis áskrift í tölvupósti? Skráðu þá netfangið þitt í reitinn hérna til hægri.


Comments