Þetta er Travis Malloy, snilldar listamaður sem "framkvæmir" hér listaverk á sviði. Tónlistin undir á myndbandinu er David Crowder Band - "Glory of it All". Ekki gefast strax upp á myndbandinu, það er þess virði að horfa á það til enda :)
Ef þið hafið náð að sjá Biophilia tónleikana hjá Björk, hafi þið vafalítið tekið eftir trommaranum hjá henni, Manu Delago, sem er snillingur á slagverkinu. En honum er margt til lista lagt og hér í myndbandinu fyrir neðan má sjá hann teikna sjálfsmynd. Og þetta er ekkert venjulegt listaverk!
MEERA húsið ögrar hömlum umhverfisins með því að vera margþætt græn vin í þröngu stórborgarumhverfi. Staðsett á eyjunni Sentosa í Singapore þurftu hönnuðurnir að finna leiðir til að skapa grænt vistvænt umhverfi á örlitlum byggingarbletti með nágrannana þétt upp við húsið. Til að skapa næði voru reistir veggir meðfram lóðunum til hliðar við húsið en um leið reynt að skapa opið og bjart hús með aðlaðandi náttúrulegu umhverfi.
Húsið er fjögurra hæð og ofan á hverri hæð er þakgarður, ekki bara með grasi eða lyngi heldur jafnvel heilu trjánum og runnunum.
Í miðju hússins er stigaop sem hefur það hlutverk að hleypa bæði birtu og sjávargolunni niður á allar hæðir hússins.
Lýsing spilar líka stórt hlutverk í að skapa réttu stemninguna bæði inn í húsinu og utan þess þegar skyggja tekur. Takið eftir því hvernig undirlýstur gróðurinn býr til alveg ný munstur í loft og á veggi með skuggum sínum.
Sundlaugin verður á sama hátt sterkur hluti af heildinni með því að hafa heilan vegg á neðstu hæðinni sem hluta af sundlauginni sjálfri. Sundlaugin er ekki hefðbundin flísalögð laug heldur þaking fjörugrjóti sem gefur henni sterkan náttúrulegan blæ og skapar þannig einstakt útsýni og upplifun af umhverfinu innan úr húsinu.
Það voru GUZ Architects sem hönnuðu húsið. Ljósmyndirnar tók Patrick Bingham Hall.
Hönnun er tímalaus. Stundum. En stundum er hún það alls ekki heldur innilega barn síns tíma. Hér er stórfenglegt myndband úr þýska sjónvarpinu frá árinu 1970 þar sem verið er að sína hvernig megi lífga upp á hina leiðinlegu búninga í þýska fótboltanum. Og ef ég á að vera hreinskilinn, þá varð þetta eiginlega síst til þess að auka áhuga minn á þýskum fótbolta.
Ímyndið ykkur nú að þið væruð að horfa á þetta í svart/hvítu sjónvarpi, eins og flestir voru enn með árið 1970 ...
Það er fleiri en Reykvíkingar sem eru með stór plön um glæsileg óperu og tónlistarhús. Yfirvöld í borginni Izmir á vesturströnd Tyrklands eru með samkeppni í gangi um hönnun á óperuhúsi borgarinnar og hafa nokkrar mjög spennandi tillögur borist í keppnina, eins og þessi frá Nuvist Architecture and Design í Istanbul. Við látum myndirnar tala sínu máli:
Burj Dubai, hæsti turn í heimi, var opnaður formlega á mánudaginn undir nýju nafni: Burj Khalifa. Turninn sem er 828 metra hár hýsir fjölda glæsiíbúða, skrifstofa og hótel sem hannað er af Giorgio Armani. Auk þess státar turninn af hæstu sundlaug í heimi (á 76 hæð) og hæstu mosku í heimi (á 128 hæð).
Turninn sem átti að vera eitt mesta stolt Dubai opnar þegar fasteignaverð hefur hrapað um 50% á innan við ári og undir nýju nafni, til heiðurs Khalifa, sjeikinum af Abu Dhabi sem bjargaði framkvæmdinni frá yfirvofandi gjaldþroti með því að dæla inn tugum milljarða dollara inn í ríkið.
Fyrr í dag settu tveir base jumparar nýtt heimsmet er þeir stukku úr toppi turnsins. Hægt er að upplifa með þeim stökkið í myndbandinu hér að neðan:
Sikumi er stuttmynd sem vann til verðlauna á Sundance kvikmyndahátíðinni. Myndin segir frá Inúíta veiðimanni sem heldur út á ísinn í leit að sel en verður vitni að morði.
Hjörtur
ps. Munið að gerast fans á Facebook! Drögum daglega út nýja vinningshafa sem fá bækur, út að borða og fleira. Kostar ekkert að vera með :)
Kseniya Simonova hefur farið eins og eldur í sinu um YouTube og netheima eftir að hún sigraði hæfileikakeppni í Úkraínsku sjónvarpi. Hæfileikar Kseniyu felast í frásagnagáfu hennar þar sem hún segir myndrænar sögur með sandi, teiknaðar á baklýsta glerplötu við undirleik dramatískrar tónlistar.
Í þessu myndbandi minnist hún þess þegar Úkraína féll undir Þjóðverja í seinni heimstyrjöldinni með átakanlegum myndum sem hún skapar og eyðileggur og umbreytir í nýtt listaverk hvert á fætur öðru. Einstök listsköpun hér á ferð. Lokaorðin sem hún skrifar með sandinum eru "þú ert ávallt nærri".
Drögum út nýjan vinningshafa á hverjum degi fram að jólum. Ert þú ekki örugglega orðinn fan á Facebook?
Það er jólalegt um að lítast í dag, á fyrsta í aðventu. Hvítur snjór yfir öllu og fólk í óða önn að setja upp jólaljósin. Sumir setja upp fleiri jólaljós en aðrir en fáir ef nokkrir hafa sett upp jafnmörg jólaljós og Osborne fjölskyldan í Little Rock í Arkansas. Það er augljóslega hægt að gera mjög jólalegt þó enginn sé snjórinn.
Þegar fjöldi ljósanna var kominn upp í milljón ljós var nágrönnunum nóg boðið og kærðu Osborne fjölskylduna. Þau gáfust hins vegar ekki upp og keyptu hús nágrannana og skreyttu þau líka og voru ljósin fljótlega komin yfir 3 milljónir. Þetta var farið að valda miklum vanda í öllu hverfinu vegna mikillar umferðar fólks sem var að koma og skoða ljósin auk ljós og hávaðamengunar. Á endanum kom Disney til bjargar og keypti ljósasýningu Osborne fjölskyldunnar og setti hana upp í Disney Studios í Orlando, Florida.
Nú er hægt að sjá ljósasýninguna á hverjum jólum í Disney. Þeir hafa haldið áfram í anda Osborne og bætt við um 2 milljónum ljósa. Ég get deilt með ykkur einu Disney leyndarmáli líka. Á hverju ári er falinn fjólublár köttur í jólaskreytingunum en kötturinn er úr hrekkjarvökuskreytingum Disney. Þannig að ef þið farið og upplifið jólastemninguna í Disney, þá getið þið haft augun opin fyrir honum líka.
Spurning hvort þetta verði einhverjum innblástur hér á landi í skreytingunum fyrir þessi jól.
Hjörtur
Drögum út nýjan vinningshafa á hverjum degi fram að jólum. Ert þú ekki örugglega orðinn fan á Facebook?
Þú getur fengið reglulegar uppfærslur í tölvupósti af þessari síðu með því að skrá netfangið þitt hér að neðan. Áskriftin er ókeypis og þú getur afskráð þig hvenær sem er.
Recent Comments