Munið þið eftir
bræðrunum tveimur sem fóru hringinn í kringum hnöttinn á tveimur Yamaha XT660R
hjólum fyrir tveimur árum? Það hljómar óneitanlega spennandi og núna
næstkomandi laugardag ætla kapparnir Einar og Sverrir Þorsteinssynir að segja
ferðasöguna upp í Arctic Trucks sem verður með mikla Yamaha sýningu um helgina.
Tilefni þess að þeir bræður ætla að rifja upp ferðasöguna er að Yamaha Ténéré ferðahjólin
eru nú komin aftur á markað.
Ténéré hjólið var
alltaf draumahjólið mitt og ég hef alltaf undrað mig á því að þessi hjól hafi
aldrei náð útbreiðslu hér á landi, með alla þá hálendisslóða, línuvegi og
"gömlu vegi" sem hægt er að þræða á svona hjóli. Ténéré hjólið
sameinar kosti ferðahjóls og krossara þannig að þú þarft ekki að vera að fara
með pallbíl eða kerru upp á hálendið með krossara eða fjórhjól á
"bakinu" heldur getur lagt upp í skemmtilega ævintýraferð um furður Íslands
og farið á sama farartækinu alla leið. Hjólið er upprunalega hannað fyrir
eyðimerkurakstur og við erum nú einu sinni með stærstu eyðimörk Evrópu í
bakgarðinum.
Goðsögn á tveimur hjólum
Þroskasaga Yamaha
Ténéré hjólanna kemur úr Paris-Dakar rallinu en sigurganga Yamaha hjólanna í
þessu erfiðasta ralli heims er löngu fræg, allt frá því Cyril Neveu vann fyrsta
Paris-Dakar rallið 1979 á Yamaha 500 XT. Ténéré hjólin eru off-road ferðahjól
og sameina eiginleika góðra ferðahjóla og lipra torfæruhjóla. Nafnið sækir
Yamaha í Ténéré eyðimörkina í Níger sem hefur verið einn erfiðasti kaflinn í
Paris-Dakar rallinu en í keppninni 1983 villtust 40 lið í sandstormi í
eyðimörkinni og tók það sum þeirra allt að fjóra daga að komast inn á rétta
slóð aftur. Yamaha Ténéré hjólin nutu gríðarlegra vinsælda sem alhliða
ferðahjól á níunda og tíunda áratugnum og eru nú komin á markað aftur í nýrri
og endurhannaðri útgáfu.
Nýju Ténéré hjólin
Hin nýju XT660Z Ténéré hjól eru ný kynslóð hjóla fyrir þá sem eru að leita sér að alhliða hjólum sem "geta farið hvert sem er og gert hvað sem er" eins og Yamaha segir sjálft. Í anda fyrri Ténéré hjólanna eru þau hönnuð fyrir ævintýrafólk, hvort sem það vill geta farið sveitavegina í heimahéraði, yfir Sprengisand eða hringinn í kringum heiminn þar sem hjólið þarf að standa sig jafnvel á malbikuðum hraðbrautum og vegleysum í óbyggðum.
Hjólið er létt og
sterkt hjól með öfluga 660 cc fjórgengis, fjögurra ventla, eins strokks SOHC
vél og fimm gíra kassa með lágum fyrsta gír fyrir vegleysurnar og háum fimmta
gír fyrir malbikaða þjóðvegi. Tankurinn er stór 23 lítra tankur sem kemur sér vel
á langferðum. Mikil fjöðrun er bæði að framan og aftan, eða 210mm að framan og
200mm að aftan.
Hjólið er smíðað til
að þola átök við erfitt landslag og eru 245mm undir lægsta punkt, hlífðarplata
undir vél og ýmis léttur hlífðarbúnaður til að vernda hjólið fyrir hnjaski. Hægt
er að bæta við auknum hlífðarbúnaði auk þess sem hægt er að fá ýmis konar
töskur og aukabúnað til að búa hjólið undir stóra ferðalagið. Hér er hægt að sjá myndband frá félögum sem fóru hringinn í kringum heiminn á þremur Ténéré hjólum og lýsa því hvernig þau hafa útbúið hjólin.
"Hér er
komið draumaferðahjólið. Þú þarft ekkert að vera að vesenast með kerrur eða
pallbíla til að fara út að leika. Þetta hjól keyrirðu bara beint úr skúrnum og
upp á Sprengisand og nýtur þess alla leið." segir Haukur
Þorsteinsson hjá Blue Mountain en þeir bjóða almenningi upp á skipulagðar
hálendisferðir á ferðahjólum. Haukur er einmitt bróðir Einars og Sverris sem
fóru hringinn.
Þeir bræður munu segja ferðasöguna kl. 12:30 laugardaginn 21. nóv. upp í Arctic Trucks, Kletthálsi. Sýningin er hins vegar opin frá kl. 12-16 og verður hægt að skoða allt það nýjasta í mótorhjólum, vélsleðum, fjórhjólum og krossurum og gæða sér á léttum veitingum. Nánari upplýsingar um sýninguna eru hér og fleiri myndir af Ténéré hjólinu er að finna á Yamaha Facebook síðunni.
Króm-Hjörturinn
ps. munið að gerast fans á Facebook til að fá nýjustu uppfærslurnar ==>
