Volkswagen kynnir hugmynd að nýjum alþýðuvagni á bílasýningunni í Frankfurt í þessari viku. Markmiðið er að endurvekja hugmyndafræði Hitlers á bak við Bjölluna. Þó hugmyndafræði Hitlers hafi nú sem betur fer liðið undir lok á allflestum sviðum þá lifir Volkswagen enn góðu lífi. Bjallan átti að verða bíll almúgans, farartæki á viðráðanlegu veðri fyrir íbúa þriðja ríkisins. Bjallan sló í gegn og er mest seldi bíll í heimi með yfir 20 milljónir eintaka seld og var framleidd í svo til óbreyttri mynd frá árunum 1938 til ársins 2003 er sú síðasta kom úr verksmiðjunni í Mexíkó.
Volkswagen hefur því ákveðið að framleiða lítinn bíl sem er með vélina aftur í. Bíl sem á að vera á viðráðanlegu verði fyrir hina venjulegu almúgafjölskyldu. En þar sem þriðja ríkið leið undir lok er það þriðji heimurinn sem er markaðssvæðið. Milljarðamarkaðirnir Indland og Kína. Áætlað er að árleg sala þar nemi um 10 milljón smábílum eftir tvö ár, eða um það leyti sem VW ætlar inn á markaðinn þar með sinn nýja bíl.
Bíllinn sem er kynntur á bílasýningunni í Frankfurt er sá fyrsti af þremur sem kynntir verða. Næstu tveir verða kynntir á bílasýningunum í Tokyo og Los Angeles seinna í haust. "Bjallan" sem kynnt er í Frankfurt er fjögurra manna smábíll með vélinni aftur í líkt og Bjallan forðum og kallast Up!. Up! mun þá væntanlega vera bæði til í hefðbundinni útgáfu fyrir Vesturlönd og strípaðri útgáfu fyrir þriðja heiminn. Bíllinn er einfaldur og stílhreinn í útliti og er talinn sækja útlit sitt í iPodana og reyna að ná að skapa tímalausa hönnun líkt og Bjallan var á sínum tíma.
Lítið er vitað um vélina í bílnum en þó er þess vænst að hann verði boðinn með 1,2 lítra þriggja strokka vél og jafnvel 2 strokka túrbóvél. Einnig eru uppi getgátur um 1,4 lítra díselvél. Bíllinn verður í ódýrari kantinum (enda á hann að vera á færi allra), eða um 500.000 kr. í ódýrari útgáfunni og 650.000 kr. í Vesturlandaútgáfunni.
Króm-Hjörturinn
(via Times Online og Autoweek)
Er þetta arftaki bjöllunar?
Hvað heldur þú? - Taktu þátt í könnunni á krom.is og láttu ljós þitt skína.