
Volvo í Svíþjóð byrjaði í dag að bjóða kaupendum að smábílnum þeirra, Volvo C30 bílnum, að velja sér sitt eigið skinn á bílinn. Hingað til hefur það verið vinsælt að geta búið til sitt eigið útlit á símana sína, boli og skó. Af hverju ætti bíllinn ekki líka að vera þannig?
Kaupendur geta valið á milli ýmissa munstra, s.s. sebramunstur, eldtungna, parkets, fiðrilda og regnboga. Það ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Ef þú þreytist síðan á mynstrinu, þá geturðu bara skipt. Mynstrið er sett á með filmu og tiltölulega einfalt er að taka hana af aftur og leggja nýja á.
Króm-Hjörturinn
