Hver man ekki eftir gamla góða trabbanum með smellnum sláttuvélahljóðunum og bláu eiturskýinu á eftir sér? Þessir bílar náðu heimsfrægð þegar þeir rúlluðu í þúsundatali yfir landamæri Austur- og Vestur Þýskalands eftir fall múrsins. Og nú geta meðlimir í klúbbnum "Skynsemin ræður" glaðst því að þessir 24 hestafla austur-þýsku bílar eru væntanlegir aftur á markað.
Það er Herpa bílaframleiðandinn sem á réttinn að framleiðslunni en bílaframleiðsla þeirra hingað til hefur samanstaðið aðallega af litlum módelbílum úr plasti sem notaðir eru til að búa til umhverfi um lestarþorp sem vinsæl eru í Evrópu.
Herpa stefnir á að kynna hinn nýja Trabant á bílasýningunni í Frankfurt á næsta ári en hefur nú þegar birt myndir af því hvernig þeir sjá bílinn fyrir sér. Þetta verður ekki sami bíllinn og síðast, en stenst hann engar öryggis- eða mengunarkröfur, heldur er hér um að ræða nýjan hagkvæman bíl sem ber sterk einkenni Trabantsins og sama nafn, en verður í samræmi við nútíma staðla. Hann verður fjögurra dyra og knúinn vél frá BMW. Og vafalítið eitthvað aðeins dýrari en forverinn en vonandi verður þó biðtíminn eftir honum einhverjum árum styttri. Fyrstu bílarnir eru væntanlegir á markað árið 2011.
Króm-Hjörturinn
(via Autounleashed.com)



