Síðast sáum við Smart smábílinn í árekstrarprófi. Hann stóð sig frábærlega, þó að farþegarnir hefðu kannski ekki komið eins vel út.
Kínverjar hafa verið í mikilli uppsveiflu undanfarið og mun fleiri vilja eignast bíla þar. Innlend framleiðsla á bílum hefur þar af leiðandi vaxið mikið og nú eru kínverskir bílar farnir að berast inn á evrópskan markað. Bílarnir líta vel út og eru á mjög góðu verði. En eru þeir eins góðir? Ég legg til að þið horfið á þetta myndband af hinum kínverska Brilliance í árekstrarprófi:
Takið eftir því hvernig hurðin fer og ramminn fyrir ofan hana og framrúðan öll. Munið þið hvernig Smart bíllinn leit út í myndbandinu sem ég sýndi síðasta sunnudag? Og það var samt eftir árekstur á talsvert meiri hraða en þessi bíll var á. Til samanburðar þá skulum við líta á hvernig aðrir bílar í sama stærðarflokki koma út í sama prófinu. Hér er myndband af Lexus 300 sem kom best út úr prófinu: Takið eftir því hvernig hurðin virðist óskemmt og fjarlægðin frá stýri að bílstjóra virðist óbreytt. Farþegarýmið aflagast ekki heldur tekur krumpusvæðið fyrir framan við öllu högginu eins og það á vera. Ég ætla að vona að það fái ekki einhver þá flugu í höfuðið að fara að flytja inn ódýra bíla frá Kína neitt á næstunni. Króm-Hjörturinn
