Bo Zolland hjá Strand Craft í Svíþjóð hefur opinberað teikningar af nýjum spíttbát sem væntanlegur er í framleiðslu. Spíttbátur byggir á hönnun GM frá 1963 á Corvette Stingray, bíl sem er löngum hefur þótt eitt af meistaraverkunum í bílahönnun en eitt af einkennum bílsins er skiptur afturglugginn sem sést á bátnum líka.
Upplýsingar um vélar bátsins og hraða hafa ekki verið gefnar upp. Báturinn verður framleiddur í takmörkuðu upplagi og er Strand Craft þegar farið að taka á móti pöntunum. Það má búast við því að báturinn verði vinsæll, ekki hvað síst hjá áhugamönnum um Corvettu bíla.
Hjörtur
(via autoblog.com)
Krómið er einn mest lesni bílavefur landsins. Þú getur fengið greinarnar í RSS áskrift eða í tölvupósti með því að skrá netfangið þitt hérna efst til hægri.



