Það er enginn maður með mönnum nema hann eigi lúxusjeppa í dag. Fleiri og fleiri bílaframleiðendur hafa stokkið á lestina eins og Porsche, Audi, BMW og fleiri. En þetta er samt kannski ekki alveg jafn ný hugmynd og maður skyldi ætla, því í Rússlandi var framleiddur þessi ljómandi laglegi "sportjeppi" undir nafninu Pobeda, eða sigur. Ekki voru mörg eintök af þessum bíl framleidd, en þetta er samt bíll sem var fjöldaframleiddur en ekki heimasmíðaður.
Þannig að nú er enginn maður með mönnum nema hann komist yfir eintak að þessum sjaldgæfa Sovét-lúxus-sportjeppa (þið megið hringja í mig ef þið finnið einhvern, ég hefði gaman af því að prufukeyra hann ;)
Króm-Hjörturinn
(via englishrussia.com)