Einn frægasti og dáðasti bíll sögunnar, Kumble bíll Andrésar Andar, betur þekktur sem 313, er kominn til landsins. Já, og Andrés er reyndar líka kominn til landsins. Við Andrés erum búnir að vera vinir frá barnæsku, eins og tíu árgangar af blöðunum hans upp í hillu hjá mér bera vott um, og hef ég marg oft heimsótt hann. Nú er hann kominn til að heimsækja mig og fleiri vini sína hér á Íslandi og er þetta í fyrsta sinn sem Andrés kemur sjálfur til Íslands.
Þegar ég frétti að bíllinn hans væri kominn hafði ég samband við Andrés og spurði hvort ég mætti ekki taka hann í smá reynsluakstur. Bíllinn var ekki kominn með leyfi fyrir akstur úti í umferðinni og takmarkaði það aðeins reynsluaksturinn en hér er það sem við sáum og upplifðum:
Ekta bíll fyrir sunnudagsrúntinn með ungana :) Hér eru líka nokkrar myndir af gripnum:
Andrés mun hitta gesti í Smáralindinni í dag á milli kl. 13:30 og 15:30. Ég hvet ykkur eindregið til þess að fara og heilsa upp á kauða.
Króm-Hjörturinn
ps. munið að gerast fans á Facebook til að fá reglulegar uppfærslur ==>
