Þrír ungir hugvitsmenn í Háskólanum í Reykjavík, Guðjón, Hjörtur og Hrafn, hafa ákveðið að breyta hefðbundnum bensínbíl í rafmagnsbíl. Til verksins hafa þeir keypt gulan Renault Kangoo árgerð 1999 sem mun hér eftir vera umhverfisvænn rafmagnsbíll. Bensínvélin er þegar horfin á braut og í staðinn kemur AC55 rafmagnsmótor sem gefur 70kw eða 93 hestöfl. Það ætti því að vera sæmilega sprækur bíllinn þó bensínið sé horfið.
Þeir félagar hafa heldur ekki litlar væntingar til bílsins. "Um leið og mótorinn var kominn til landsins var hafist handa við
að setja mótorinn á gírkassann en fljótlega kom í ljós að mótorinn og
gírkassinn vildu ekki vera vinir og pössuðu ekki saman. Nú voru góð ráð
dýr og eftir töluverðar vangaveltur fram og til baka var ákveðið að
smella hásingu undan Toyota Touring undir Kangooinn og gera hann
afturhjóladrifinn og setja mótorinn í miðjan bílinn, svona eins og er í
Ferrari." segir á heimasíðu verkefnisins.
Fyrir þá sem hafa áhuga á að kynna sér verkefnið nánar verða þeir með opið hús hjá sér dagana 19-20 nóvember næstkomandi frá kl. 13-19 í Lagnakerfamiðstöð Íslands í Keldnaholti. Einnig er hægt að fylgjast með framvindu mála á heimasíðu verkefnisins og í vefmyndavél sem þar er.
Króm-Hjörturinn