DeLorean, bíllinn sem breytt var í tímavél í Aftur til framtíðar myndunum er væntanlegur aftur á markað! Þetta var tilkynnt nú á dögunum á sýningu í Houston í Texas. Á síðasta ári keypti fyrirtækið Humble réttinn á bílnum sem hefur ekki verið framleiddur í yfir 20 ár og nú er ljóst hvað þeir hafa ákveðið að gera.
Humble hefur tilkynnt að DeLorean CMV12 bíllinn komi á markað á næsta ári sem 2013 árgerð af DeLorean CMVEV-12. EV stendur fyrir Electrical Vehicle. Hann er sem sagt rafknúinn og það er enginn draslrafmótor heldur á hann að geta komið bílnum í 100 km/klst á 4.9 sekúndum!
Lítið er vitað um bílinn en þó hefur frést að örfáir aðilar hafi fengið að reynsluaka honum með rafmótor fyrir örfáum dögum. Þetta myndband er tekið á keppnisbraut í Texas og sá sem er undir stýri í bílnum er Cameron Wynne, sonur Stephen Wynne sem á DeLorean fyrirtækið.
Svo er bara vona að það bíði einn í silfurpappír undir jólatrénu ;)
Citroen hefur átt nokkra gullmola í gegnum tíðina, og við fyrstu sýn virðist einn hafa bæst í konfektkassann þeirra: Citroen DS3 Racing. DS3 er lítill og nettur sportbíll hannaður fyrir WRC og er settur til höfuðs Clio 200 og Mini JCW - og hann hefur útlitið með sér.
DS3 er knúinn 1.6 lítra túrbóvél sem hefur áður sést í Mini Cooper bílnum en enn eru ekki búið að gefa upp nánari upplýsingar um hverju þessi litla vél getur áorkað en sagt er að hún eigi að koma bílnum upp í hundraðið á vel innan við 7 sekúndum.
Þar sem smábílar virðast vera málið á nýja Íslandi þá ætti þessi DS3 að geta heillað landann, lítill og nettur en með framúrskarandi aksturseiginleika fyrir íslenskar aðstæður. Og "lúkkar" líka vel :)
Munið þið eftir
bræðrunum tveimur sem fóru hringinn í kringum hnöttinn á tveimur Yamaha XT660R
hjólum fyrir tveimur árum? Það hljómar óneitanlega spennandi og núna
næstkomandi laugardag ætla kapparnir Einar og Sverrir Þorsteinssynir að segja
ferðasöguna upp í Arctic Trucks sem verður með mikla Yamaha sýningu um helgina.
Tilefni þess að þeir bræður ætla að rifja upp ferðasöguna er að Yamaha Ténéré ferðahjólin
eru nú komin aftur á markað.
Ténéré hjólið var
alltaf draumahjólið mitt og ég hef alltaf undrað mig á því að þessi hjól hafi
aldrei náð útbreiðslu hér á landi, með alla þá hálendisslóða, línuvegi og
"gömlu vegi" sem hægt er að þræða á svona hjóli. Ténéré hjólið
sameinar kosti ferðahjóls og krossara þannig að þú þarft ekki að vera að fara
með pallbíl eða kerru upp á hálendið með krossara eða fjórhjól á
"bakinu" heldur getur lagt upp í skemmtilega ævintýraferð um furður Íslands
og farið á sama farartækinu alla leið. Hjólið er upprunalega hannað fyrir
eyðimerkurakstur og við erum nú einu sinni með stærstu eyðimörk Evrópu í
bakgarðinum.
Goðsögn á tveimur hjólum
Þroskasaga Yamaha
Ténéré hjólanna kemur úr Paris-Dakar rallinu en sigurganga Yamaha hjólanna í
þessu erfiðasta ralli heims er löngu fræg, allt frá því Cyril Neveu vann fyrsta
Paris-Dakar rallið 1979 á Yamaha 500 XT. Ténéré hjólin eru off-road ferðahjól
og sameina eiginleika góðra ferðahjóla og lipra torfæruhjóla. Nafnið sækir
Yamaha í Ténéré eyðimörkina í Níger sem hefur verið einn erfiðasti kaflinn í
Paris-Dakar rallinu en í keppninni 1983 villtust 40 lið í sandstormi í
eyðimörkinni og tók það sum þeirra allt að fjóra daga að komast inn á rétta
slóð aftur. Yamaha Ténéré hjólin nutu gríðarlegra vinsælda sem alhliða
ferðahjól á níunda og tíunda áratugnum og eru nú komin á markað aftur í nýrri
og endurhannaðri útgáfu.
Nýju Ténéré hjólin
Hin nýju XT660Z
Ténéré hjól eru ný kynslóð hjóla fyrir þá sem eru að leita sér að alhliða
hjólum sem "geta farið hvert sem er og gert hvað sem er" eins og
Yamaha segir sjálft. Í anda fyrri Ténéré hjólanna eru þau hönnuð fyrir
ævintýrafólk, hvort sem það vill geta farið sveitavegina í heimahéraði, yfir
Sprengisand eða hringinn í kringum heiminn þar sem hjólið þarf að standa sig
jafnvel á malbikuðum hraðbrautum og vegleysum í óbyggðum.
Hjólið er létt og
sterkt hjól með öfluga 660 cc fjórgengis, fjögurra ventla, eins strokks SOHC
vél og fimm gíra kassa með lágum fyrsta gír fyrir vegleysurnar og háum fimmta
gír fyrir malbikaða þjóðvegi. Tankurinn er stór 23 lítra tankur sem kemur sér vel
á langferðum. Mikil fjöðrun er bæði að framan og aftan, eða 210mm að framan og
200mm að aftan.
Hjólið er smíðað til
að þola átök við erfitt landslag og eru 245mm undir lægsta punkt, hlífðarplata
undir vél og ýmis léttur hlífðarbúnaður til að vernda hjólið fyrir hnjaski. Hægt
er að bæta við auknum hlífðarbúnaði auk þess sem hægt er að fá ýmis konar
töskur og aukabúnað til að búa hjólið undir stóra ferðalagið. Hér er hægt að sjá myndband frá félögum sem fóru hringinn í kringum heiminn á þremur Ténéré hjólum og lýsa því hvernig þau hafa útbúið hjólin.
"Hér er
komið draumaferðahjólið. Þú þarft ekkert að vera að vesenast með kerrur eða
pallbíla til að fara út að leika. Þetta hjól keyrirðu bara beint úr skúrnum og
upp á Sprengisand og nýtur þess alla leið." segir Haukur
Þorsteinsson hjá Blue Mountain en þeir bjóða almenningi upp á skipulagðar
hálendisferðir á ferðahjólum. Haukur er einmitt bróðir Einars og Sverris sem
fóru hringinn.
Þeir bræður munu segja ferðasöguna kl. 12:30 laugardaginn 21. nóv. upp
í Arctic Trucks, Kletthálsi. Sýningin er hins vegar opin frá kl. 12-16 og
verður hægt að skoða allt það nýjasta í mótorhjólum, vélsleðum, fjórhjólum og krossurum og gæða sér á léttum
veitingum. Nánari upplýsingar um sýninguna eru hér og fleiri myndir af Ténéré hjólinu er að finna á Yamaha Facebook síðunni.
Króm-Hjörturinn
ps. munið að gerast fans á Facebook til að fá nýjustu uppfærslurnar ==>
Ofursportbíllinn frá Bugatti, hinn 1001 hestafla Veyron, er væntanlegur í nýrri útgáfu, Bugatti Veyron 16.4 Grand Sport. Það sem gerir þessa útgáfu frábrugðna "gömlu" týpunni er að hægt er að taka af honum toppinn.
Breytingarnar á bílnum eru mun meiri en bara að toppurinn hafi verið klipptur af honum. Búið er að hækka framrúðuna og styrkja bílinn til þess að tryggja að öryggi farþeganna sé það sama og í harðtopps bílnum. Ljósunum hefur verið breytt örlítið og ýmsar aðrar smávægilegar breytingar hafa átt sér stað.
Það væri nú ekki leiðinlegt að setjast undir stýri á þessum :)
Ef þú skyldir nú lenda í því að það byrji að rigna þegar þú ert ekki með toppinn á, þá er bíllinn með "varatopp" úr taui sem opnast "eins og regnhlíf" að sögn Bugatti. Hins vegar lækkar það hámarkshraðann verulega að vera með þann topp á, en einungis má aka bílnum á 130 kílómetra hraða með slíkum toppi. Með harða toppinum á er hámarkshraðinn 252 mílur eða 403 km/klst og án topps er hámarkshraðinn 224 mílur eða 359 km/klst. Það ætti að duga flestum, alla veganna á hinum íslensku vegum.
Það er engin smá orka í þessum bíl
Aðeins 150 eintök verða framleidd af bílnum og fara 50 þeirra til "áskrifenda". Byrjað var að selja bílana fyrir helgi en verðmiðinn mun vera í kringum 1,4 milljónir Evra.
Krómið er mest lesni bílavefur landsins. Þú getur fengið greinarnar í RSS áskrift eða í tölvupósti með því að skrá netfangið þitt hérna efst til hægri.
Volvo hefur ákveðið að opinbera myndir af XC60 smájeppanum frá Volvo sem frumsýna átti á bílasýningunni í Genf. Myndum af bílnum lak út á netið fyrir nokkrum dögum og í kjölfarið hefur Volvo ákveðið að gera fleiri myndir opinberar.
Volvo XC60 jeppinn þykir best heppnaða hönnun Volvo til þessa. Útlitseinkennin sem Volvo hefur verið að þróa í undanförnum módelum þykja mjög sterk í þessum bíl og á að vera hægt að greina að hér sé Volvo á ferð úr tvöfalt meiri fjarlægð en fyrri módel. Ég verð að taka undir það að þetta er mjög laglegur bíll og mun laglegri en margir af þeim "hálfjeppum" sem eru á markaðnum í dag og líta út eins og þeir hafi ekki hugmynd um hvort þeir eigi að vera skutbílar, smábílar eða jeppar.
Bíllinn er væntanlegur á markað í Evrópu í lok ársins en kemur ekki fyrr en í byrjun árs 2009 á Bandaríkjamarkað. Hugmyndin með bílnum er að ná í þann kúnnahóp sem Volvo er búinn að vera að byggja upp með S40 og C30 bílunum og að XC60 verði þar eðlilegt framhald. Bíll sem heldur einkennum sínum en getur samt meira.
XC60 er öruggasti bíllinn sem Volvo hefur sett á markað og er auk alls hefðbundins öryggisbúnaðar frá Volvo búinn svokölluðum City Safety búnaði sem bremsar bílinn sjálfkrafa þegar hætta er á árekstri á lítilli ferð. Á Bandaríkjamarkaði mun bíllinn verða með aldrifi og búinn T6 vél sem skilar 281 hestafli en ekki er búið að gefa upp hvaða vélar verða í bílnum á Evrópumarkaði. Engar verðupplýsingar hafa heldur komið fram.
Dodge Challenger og HEMI vélin sem knúði hann er goðsagnavera í bílaheiminum en í kringum 1970 var Dodge Challenger einn öflugasti götubíllinn sem í boði var í Bandaríkjunum. Nú er Dodge að endurvekja goðsögnina og nú er loks kominn á markað ný útgáfa af Dodge Challenger sem er búin að vera lengi í undirbúningi.
Nýi bíllinn er búinn 6,1 lítra HEMI vél sem ætti að koma honum eitthvað áfram en hún skilar 425 hestöflum. Bíllinn er eingöngu fáanlegur í þremur litum, HEMI-appelsínugulum, skær-silfruðum og "brilliant"-svörtum. Það fer ekki á milli mála að hér er virkilega glæsilegur amerískur sportbíll sem er trúr uppruna sínum. Það sést strax að hér er sannur Challenger á ferð.
Fyrsta eintakið af 2009 bílnum fór á uppboð og seldist á 400.000 dollara. Bíllinn verður með merki á mælaborðinu sem á stendur #1 auk þess sem að sá sem vann uppboðið fær VIP passa á Dodge Challenger 500 NASCAR keppnina síðar á árinu. Ágóðinn af uppboðinu rennur til notMYkid samtakanna sem eru að basla við að skilja hvernig ungdómurinn hegðar sér.
En Challengerinn var ekki sá eini sem var seldur á uppboðinu. Þar mátti líka sjá þessa bíla:
Fyrsta eintakið af Corvette ZR-1 2009 fór á eina milljón dollara.
Fyrsta eintakið af Shelby GT500 2009 fór á 605.000 dollara: Og svo voru nokkrir gamlir eins og þessi 1963 árgerð af Corvettu sem hönnuð var af Pininfarina:
Og þessi Shelby GT500 hugmyndabíll frá árinu 1969 sem var í persónulegu safni Carroll Shelby:
Og þessi glæsilegi fljúgandi bíll, Panoz Esperante 2004 með handsmíðuðum vængjum. Þessi bíll vann sér að til frægðar að hafa náð að fljúga 280 fet eða tæpa hundrað metra og lent örugglega eftir það. Hann fór fyrir smápeninga eða bara 45.000 dollara, um 3 milljónir íslenskra. Svona svipað og einn Avensis.
En furðulegasta farartækið er væntanlega þessi bílétandi róbó-risaeðla sem hefur haft það fyrir stafni að éta bíla, flugvélar og fleiri farartæki á sýningum undanfarin 20 ár. Hún fór á rúma hálfa milljón dollara:
Í þjóðsögum Jóns Árnasonar er sagt frá því að með því að taka heilann úr hrafni, fara með galdraþulu yfir honum og setja hann undir tunguna sé hægt að skilja fuglamál. Nú geta bílar fengið slíkann heila sem þeir setja undir húddið til þess að skilja mannamál, án þess að manneskjan sé nokkurs staðar nærri.
AutoPage C3 er nýr búnaður fyrir bíla sem búið er að kynna í Bandaríkjunum. Þessi búnaður er farsími bílsins og virkar þannig að þú getur stjórnað bílnum með farsímanum þínum. Þú ekur honum ekki, en þú getur sett hann í gang, opnað hurðir og skott, skrúfað niður rúður og fleira með því að senda honum skipanir í gegnum símann. Um leið er þessi búnaður GPS tæki fyrir bílinn þannig að símnotandinn getur fylgst með staðsetningu símans.
Þetta er búnaður sem unglingar eiga eftir að hata og foreldrar elska.
Fyrstu myndir af væntanlegum Audi A4 láku út á netið í fyrradag, og í kjölfarið hefur Audi birt opinberar myndir af bílnum, sem við birtum hér.
Nýi bíllinn er stærri en fyrirrennarinn, eða um 4,7 metrar, með aukið fótarými, stærra skott og lengra á milli hjóla. Bíllinn er jafnframt búinn ýmsum aukabúnaði sem hingað til hefur aðeins verið fáanlegur með A6 og A8 bílunum. Loftmótsstaðan minnkar og þrátt fyrir aukna stærð er bíllinn léttari en fyrirrennari. Það þýðir betri bensínnýting og aukin hröðun enda er nýi A4 aðeins 6.1 sekúndu í hundraði með 240 hestafla, 3,0 lítra V6 TDI díselvél. Vel af sér vikið það.
Bíllinn verður formlega frumsýndur í Frankfurt í næsta mánuði og er væntanlegur á markað í Þýskalandi í nóvember.
Króm-Hjörturinn
(þið getið lesið meira og séð fleiri myndir á WorldCarFans.com)
Tilkynnt var í gær að DeLorean, stálsportbíllinn sem gerði garðinn frægan með Christopher Lloyd (Doc) og Michael J. Fox (McFly) í Back To The Future myndum, væri væntanlegur aftur í framleiðslu. Ekki er um neina fjöldaframleiðslu að ræða heldur áætlar DeLorean Motor Company að handsmíða 1-2 bíla á mánuði. Fyrstu bílarnir eru væntanlegir á göturnar í Bandaríkjunum í byrjun árs 2009 og munu kosta u.þ.b. 57.500 dollara.
DeLorean var aðeins framleiddur í skamman tíma á seinni hluta ársins 1981 og í byrjun árs 1982. John DeLorean, eigandi DeLorean verksmiðjanna var handtekinn fyrir kókaínsmygl og verksmiðjunni lokað í kjölfarið. DeLorean Motor Company í Texas keypti lagerinn og vörumerkið og hefur séð um að þjónusta þá 6.500 bíla sem til eru í dag.
Útlitslega verður bíllinn mjög áþekkur fyrirrennara sínum en hann mun koma með nýrri vél og nýrri innréttingu í takt við þá þróun sem orðið hefur á bílamarkaðnum. Fimm söluaðilar í Evrópu og Ameríku hafa fengið leyfi til að selja bílinn þegar hann kemur aftur á markað og að því er við best vitum, er enginn þeirra hérlendis.
Þú getur fengið reglulegar uppfærslur í tölvupósti af þessari síðu með því að skrá netfangið þitt hér að neðan. Þá missirðu ekki af neinu.
Áskriftin er ókeypis og þú getur afskráð þig hvenær sem er.