Ljósmyndari pressunnar náði í gær myndum af hugmyndabíl sem verið var að mynda við Smáralindina. Mikil leynd hvíldi yfir myndatökunum og var bíllinn hulinn til að ekki væri hægt að sjá útlit hans. Hér var á ferðinni hugmyndabíll frá Peugeot og eftir að hafa legið yfir myndunum hef ég komist að þeirri niðurstöðu að hér sé á ferðinni Peugeot H1 hugmyndabíllinn en orðrómur hefur verið um að frumsýna eigi hann á bílasýningunni í París í næsta mánuði. Enn hafa engar myndir verið birtar af bílnum og munu þetta vera fyrstu myndirnar sem nást af bílnum.
Peugeot H1 hugmyndabíllinn kemur í framhaldinu af hinum vel heppnaða Peugeot SR1 hugmyndabíl sem frumsýndur var í Genf í mars. Sá bíll markar upphaf nýrrar hönnunarstefnu hjá Peugeot og var um leið kynnt ný útgáfa af ljóninu, einkennismerki Peugeot, og nýtt slagorð Peugeot sem er Motion and Emotion.
Peugeot H1 bíllinn er hærri og styttri en SR1 bíllinn og er talinn vera systurbíll Citroen DS4 hugmyndabílsins sem kynntur var í Genf fyrr á árinu. Bæði Peugeot H1 og Citroen DS4 tilheyra "high rider" flokki sem eru rúmgóðir en fyrirferðalitlir fjölnotabílar, nokkurs konar "cross-over" á milli jeppa og smábíla.
Ísland hefur verið vinsælt land til að taka myndir af nýjum evrópskum bílum á undanförnum árum og það verður spennandi að sjá myndirnar af Peugeot H1 bílnum þegar þær verða birtar. Hér að neðan má sjá myndband með auglýsingunni "Winds of Change" sem tekin var hér á landi fyrir Peugeot 308 bílinn.
Króm-Hjörturinn





