Nissan hefur þróað nýja gerð af bílalakki sem er þeirrar náttúru gætt að breyta litum eftir því hversu mikill rafstraumur er sendur í gegnum lakkið.
Bílstjórinn getur valið úr fjölda lita á bílinn með takka sem er inn í bílnum. Konur eiga eftir að elska þetta því nú geta þær alltaf ekið bíl í stíl við veskið og skóna. Eini gallinn er að til þess að halda litnum þarf að vera stöðugur straumur sem þýðir að þegar drepið er á bílnum fer hann í grunnlitinn sem er hvítur. Það þarf því að koma fyrir búnaði í bílnum sem virkar svipað og "örugg heim" ljósabúnaðurinn sem lýsir í tvær mínútur eftir að drepið á bílnum. Það væri hægt að kalla það "úr augsýn" stillingu sem virkar þannig að bíllinn heldur litnum í stíl við kjólinn þar til eigandinn er komin úr augsýn. Því annars er hann ekki í stíl og það gengur náttúrulega ekki.
Króm-Hjörturinn
(via Trendhunter.com)

