Fyrr í dag nauðlenti pólsk Boing 767 þota frá flugfélaginu LOT í Varsjá án þess að nokkurn sakaði. Flugvélin var á leiðinni frá Newark í New Jersey til Póllands með 230 farþega innanborðs. Þegar flugvélin nálgaðist Varsjá kom í ljós bilun í lendingarbúnaði þannig að hjólin komu ekki niður. Eftir að vélin hafði losað sig við eldsneyti reyndi flugstjórinn magalendingu að hætti "Scully" sem tókst fullkomlega. Lendinguna má sjá í myndbandinu hér að neðan:
Króminu hefur borist þetta myndband úr eftirlitsmyndavél í lögreglubíl í Reykjavík. Myndbandið sýnir bílaeltingaleik þar sem fjöldi lögreglubíla tekur þátt í eftirför á eftir bílaþjóf á Toyota Land Cruiser.
Eftirför lögreglunnar virðist vel skipulögð og bílaþjófurinn er tekinn úr umferð á mjög snyrtilegan hátt í lokin. Bravó!
DeLorean, bíllinn sem breytt var í tímavél í Aftur til framtíðar myndunum er væntanlegur aftur á markað! Þetta var tilkynnt nú á dögunum á sýningu í Houston í Texas. Á síðasta ári keypti fyrirtækið Humble réttinn á bílnum sem hefur ekki verið framleiddur í yfir 20 ár og nú er ljóst hvað þeir hafa ákveðið að gera.
Humble hefur tilkynnt að DeLorean CMV12 bíllinn komi á markað á næsta ári sem 2013 árgerð af DeLorean CMVEV-12. EV stendur fyrir Electrical Vehicle. Hann er sem sagt rafknúinn og það er enginn draslrafmótor heldur á hann að geta komið bílnum í 100 km/klst á 4.9 sekúndum!
Lítið er vitað um bílinn en þó hefur frést að örfáir aðilar hafi fengið að reynsluaka honum með rafmótor fyrir örfáum dögum. Þetta myndband er tekið á keppnisbraut í Texas og sá sem er undir stýri í bílnum er Cameron Wynne, sonur Stephen Wynne sem á DeLorean fyrirtækið.
Svo er bara vona að það bíði einn í silfurpappír undir jólatrénu ;)
Guinness World Records hefur staðfest nýtt heimsmet Arctic Trucks, fyrir hraðamet yfir Suðurskautslandið að Suðurpólnum.
Í leiðandri sem farinn var fyrir Landfræðifélag Kazakhstan í desember síðastliðnum var tveimur Toyota Hilux AT44 Expedition bílum ekið 2.308 km leið frá Novo stöðinni að Suðurpólnum á einungis 108 klst. Meðalhraðinn var 21,4 km á klst og er það heimsmet í ferðahraða á þessu gríðarlega erfiða svæði. Fyrra metið var reyndar í höndum annars Íslendings, Gunnars Egilssonar sem ók 6 hjóla Ford Econoline á Suðurpólinn frá Patriot Hills.
Aðstæðurnar sem bílunum var ekið eru þær erfiðustu sem hægt er að finna á Jörðinni, með gríðarlegum kulda, mikilli hæð yfir sjávarmáli en leiðin lá í um 3.500 metra hæð, auk þess sem ekið var yfir ókönnuð sprungusvæði. Leiðangurinn heppnaðist mjög vel og er önnur sönnun þeirra yfirburða sem bílar Arctic Trucks búa yfir.
Hlynur Sigurðsson, ökumaður og bifvélavirki við annan bílinn á Suðurpólnum. (Photo: Business Wire)
Arctic Trucks hefur verið að geta sér góðs orðs á erlendum vettvangi fyrir bíla sína, en frægasti leiðangur þeirra hingað til er væntanlega ferð James May og Jeremy Clarkson á Norðurpólinn í breyttum bíl frá Arctic Trucks. Þeim sama bíl ók James May síðan á glóandi hrauni á Fimmvörðuhálsi þegar gaus þar apríl í fyrra.
“Það er vaxandi áhugi frá viðskiptavinum sem vilji skipta út hægari, eyðslufrekum beltisfarartækjum með hraðskreiðari, léttari og umhverfisvænni farartækjum. Við berum mikla virðingu fyrir hinu viðkvæmri náttúru suðurskautsins og farartæki okkar hafa opnað fyrir nýja möguleika fyrir rannsóknarleiðangra á Suðurskautinu." segir Emil Grímsson hjá Arctic Trucks.
Leiðangurinn var skipulagður af Kazakhstan National Geographic Society (KNGS) og The Antarctica Company (TAC). Fjórir aðrir leiðangrar eru í bígerð, þar á meðal einn fyrir KNGS í breyttum Toyota Landcruiser þar sem leiðangurinn mun fagna 20 afmæli sjálfstæðis Kazakhstan 16. desember á Suðurpólnum og um leið 100 ára afmæli komu Amundsen og Scott til Suðurpólsins. Einn hinna leiðangranna er síðan á breyttum Toyota Tacoma bíl sem er sérstaklega smíðaður til þess að bæta heimsmetið sem Guinness var að staðfesta. Í þeim leiðangri verður ekið frá Patriot Hills, um 1.100 km leið.
Það fylgir ekki sögunni hvernig þetta byrjaði, en sá sem tók myndbandið hafði ætlað að fara með bíllinn sinn í þvott ekki langt frá þegar hann tók eftir fólki sem safnaðist saman við hinn enda bílastæðisins til að horfa á eitthvað. Þegar hann kom nær sá hann hvað það var sem hafði gripið athygli vegfarenda:
Sem betur fer voru ekki margir bílar á bílastæðinu, en það er ótrúlegt að sjá viðbrögðin hjá fólkinu. Eða lögreglunni þegar hún kemur á staðinn.
Þetta er með skemmtilegri bílaeltingaleikjum og augljóst að hér er ekki sami hugsunarháttur sem ræður för og hjá mörgum örvæntingarfullum eða harðsvíruðum glæpamönnum á flótta undan réttvísinni.
Það eru ísilagðar götur víðar en á Íslandi. Vinur minn sem er búsettur í Seattle í Bandaríkjunum sendi mér þetta myndband sem nágranni hans tók fyrir nokkrum dögum síðan. Það var vægast sagt hált í brekkunni hjá honum og hann er eiginlega bara feginn að hafa ekki verið út á stoppistöð þar sem strætóinn stoppaði ekki. Hann fór bara yfir stöðina. Sumir sluppu þó ótrúlega vel.
Það fór ekki framhjá neinum bílaáhugamönnum að verið væri að taka upp auglýsingu hér í sumar af mjög leyndardómsfullum bíl. Ég sá bílinn myndaðan fyrir utan 1919 í Hafnarstrætinu og setti fram þá kenningu að hér væri um að ræða H1 concept bílinn sem orðrómur væri um að ætti að kynna í fyrsta sinn á bílasýningunni í París.
Bílasýningin opnaði núna um helgina og þar var hann kominn, hugmyndabíllinn sem var myndaður hér í síðasta mánuði undir nafninu HR1. Auglýsingin sem var tekin hér er jafnframt tilbúin og er hún birt hér í fyrsta sinn:
Hér er stutt myndband af bílnum sem tekið var á föstudaginn á bílasýningunni í París.
Bíllinn er sagður vera samruni litla borgabílsins, fjölnota jeppans og coupé bíls. Markhópurinn er hinn tæknivæddi og tískumeðvitaði borgabúi eða eins og þeir orða það sjálfir "young active city dwellers who are style gurus and technology buffs". Þar höfum við það.
Bíllinn er mjög nýstárlegur og mun státa af öllum helstu nýjungum í tengingum og aðlögunarhæfni. Bíllinn verður hybrid4 bíll með 1.2 lítra bensínvél og 36 hestafla rafmótor. Þetta er annar bíllinn sem kynntur er í hinu nýja útliti þessa 200 ára gamla fyrirtækis, en fyrsti bíllinn var SR1 sportbíllinn.
Happy hour í kvöld? Hér er alveg ný nálgun á auglýsingu til varnar akstri undir áhrifum áfengis. Ekkert blóð, engar sírenur, engin glerbrot. En áhrifarík saga engu að síður sögð með hjálp twitter, foursquare, facebook, linkedin og heimabankans:
Þú getur fengið reglulegar uppfærslur í tölvupósti af þessari síðu með því að skrá netfangið þitt hér að neðan. Þá missirðu ekki af neinu.
Áskriftin er ókeypis og þú getur afskráð þig hvenær sem er.