Munið þið eftir
bræðrunum tveimur sem fóru hringinn í kringum hnöttinn á tveimur Yamaha XT660R
hjólum fyrir tveimur árum? Það hljómar óneitanlega spennandi og núna
næstkomandi laugardag ætla kapparnir Einar og Sverrir Þorsteinssynir að segja
ferðasöguna upp í Arctic Trucks sem verður með mikla Yamaha sýningu um helgina.
Tilefni þess að þeir bræður ætla að rifja upp ferðasöguna er að Yamaha Ténéré ferðahjólin
eru nú komin aftur á markað.
Ténéré hjólið var
alltaf draumahjólið mitt og ég hef alltaf undrað mig á því að þessi hjól hafi
aldrei náð útbreiðslu hér á landi, með alla þá hálendisslóða, línuvegi og
"gömlu vegi" sem hægt er að þræða á svona hjóli. Ténéré hjólið
sameinar kosti ferðahjóls og krossara þannig að þú þarft ekki að vera að fara
með pallbíl eða kerru upp á hálendið með krossara eða fjórhjól á
"bakinu" heldur getur lagt upp í skemmtilega ævintýraferð um furður Íslands
og farið á sama farartækinu alla leið. Hjólið er upprunalega hannað fyrir
eyðimerkurakstur og við erum nú einu sinni með stærstu eyðimörk Evrópu í
bakgarðinum.
Goðsögn á tveimur hjólum
Þroskasaga Yamaha
Ténéré hjólanna kemur úr Paris-Dakar rallinu en sigurganga Yamaha hjólanna í
þessu erfiðasta ralli heims er löngu fræg, allt frá því Cyril Neveu vann fyrsta
Paris-Dakar rallið 1979 á Yamaha 500 XT. Ténéré hjólin eru off-road ferðahjól
og sameina eiginleika góðra ferðahjóla og lipra torfæruhjóla. Nafnið sækir
Yamaha í Ténéré eyðimörkina í Níger sem hefur verið einn erfiðasti kaflinn í
Paris-Dakar rallinu en í keppninni 1983 villtust 40 lið í sandstormi í
eyðimörkinni og tók það sum þeirra allt að fjóra daga að komast inn á rétta
slóð aftur. Yamaha Ténéré hjólin nutu gríðarlegra vinsælda sem alhliða
ferðahjól á níunda og tíunda áratugnum og eru nú komin á markað aftur í nýrri
og endurhannaðri útgáfu.
Nýju Ténéré hjólin
Hin nýju XT660Z
Ténéré hjól eru ný kynslóð hjóla fyrir þá sem eru að leita sér að alhliða
hjólum sem "geta farið hvert sem er og gert hvað sem er" eins og
Yamaha segir sjálft. Í anda fyrri Ténéré hjólanna eru þau hönnuð fyrir
ævintýrafólk, hvort sem það vill geta farið sveitavegina í heimahéraði, yfir
Sprengisand eða hringinn í kringum heiminn þar sem hjólið þarf að standa sig
jafnvel á malbikuðum hraðbrautum og vegleysum í óbyggðum.
Hjólið er létt og
sterkt hjól með öfluga 660 cc fjórgengis, fjögurra ventla, eins strokks SOHC
vél og fimm gíra kassa með lágum fyrsta gír fyrir vegleysurnar og háum fimmta
gír fyrir malbikaða þjóðvegi. Tankurinn er stór 23 lítra tankur sem kemur sér vel
á langferðum. Mikil fjöðrun er bæði að framan og aftan, eða 210mm að framan og
200mm að aftan.
Hjólið er smíðað til
að þola átök við erfitt landslag og eru 245mm undir lægsta punkt, hlífðarplata
undir vél og ýmis léttur hlífðarbúnaður til að vernda hjólið fyrir hnjaski. Hægt
er að bæta við auknum hlífðarbúnaði auk þess sem hægt er að fá ýmis konar
töskur og aukabúnað til að búa hjólið undir stóra ferðalagið. Hér er hægt að sjá myndband frá félögum sem fóru hringinn í kringum heiminn á þremur Ténéré hjólum og lýsa því hvernig þau hafa útbúið hjólin.
"Hér er
komið draumaferðahjólið. Þú þarft ekkert að vera að vesenast með kerrur eða
pallbíla til að fara út að leika. Þetta hjól keyrirðu bara beint úr skúrnum og
upp á Sprengisand og nýtur þess alla leið." segir Haukur
Þorsteinsson hjá Blue Mountain en þeir bjóða almenningi upp á skipulagðar
hálendisferðir á ferðahjólum. Haukur er einmitt bróðir Einars og Sverris sem
fóru hringinn.
Þeir bræður munu segja ferðasöguna kl. 12:30 laugardaginn 21. nóv. upp
í Arctic Trucks, Kletthálsi. Sýningin er hins vegar opin frá kl. 12-16 og
verður hægt að skoða allt það nýjasta í mótorhjólum, vélsleðum, fjórhjólum og krossurum og gæða sér á léttum
veitingum. Nánari upplýsingar um sýninguna eru hér og fleiri myndir af Ténéré hjólinu er að finna á Yamaha Facebook síðunni.
Króm-Hjörturinn
ps. munið að gerast fans á Facebook til að fá nýjustu uppfærslurnar ==>
Munið þið eftir Ken Block sem breytti Imprezunni sinni í snjóbíl og ég skrifaði um í síðustu viku? Hann bauð James May í allsvakalegan bíltúr í sumar sem ég hugsa að James eigi aldrei eftir að gleyma, þó hann hafi nú upplifað eitt og annað á vegum úti.
Hafþór Grant mótorhjólakappi fór heljarstökk afturábak á mótorcross hjóli sínu síðastliðinn laugardag á æfingasvæði KKA á Akureyri. Er þetta í fyrsta sinn svo staðfest sé sem slíkt er gert. Í gær reyndi síðan 15 ára félagi Hafþórs úr klúbbnum við stökkið en tókst ekki betur en svo að hann fótbrotnaði á báðum.
Hér að neðan má sjá myndbandsupptöku af stökki Hafþórs.
Af gefnu tilefni vörum við fólk við að reyna þetta heima hjá sér, því eins og Morgunblaðið benti svo skarpega á þá "Að sögn
kunnugra mun það ekki á færi margra að fara í heljarstökk aftur á bak á mótorcrosshjólum."
Sonur hins goðsagnakennda ofurhuga Evel Knievel setti nýtt met í King's Island Park í Ohio í Bandaríkjunum í dag þegar hann stökk yfir 24 rútur.
Með þessu stökki sínu sló hinn 25 ára gamli Robbie Knievel með föður síns sem hann setti fyrir þremur áratugum síðan á sama bílastæðinu en Evel Knievel stökk þá yfir 14 rútur.
Já, viti menn. Krómið er komið með eigin sjónvarpsstöð á netinu. Svona hér um bil.
Fyrsta myndbandið er af þremur gaurum á trial hjólum sem hjóluðu fram og til baka yfir bíla á bílastæðinu fyrir utan Fífuna um helgina en eins og flestir bílaáhugamenn vita, þá er bílasýningin í gangi þar núna um helgina.
Þetta er frumraun Krómsins í myndbandagerð. Eigum við gera fleiri? Reynsluakstursmyndbönd kannski? Látið álit ykkar ljós.
Ef venjulegt einhjól hefur hingað til virkað sem mikil áskorun, hvað segirðu þá um vélknúið einhjól?
Uno er vélknúið einhjól sem Ben J. Poss Gulak, 18 ára gamall Kanadamaður smíðaði og var frumsýnt á 2008 National Motorcycle Show í Toronto í Kanada. Tækið vegur 54,4 kíló og eina stjórntækið er rofi til að kveikja á því.
Til að auka ferðina hallarðu þér fram og til að hægja á þér eða bakka hallarðu þér aftur. Til að beygja hallarðu þér til hliðar. Dekkið er tvöfalt og hjólið er knúið með rafmagnsmótor. Ekki fékkst uppgefið hver hámarkshraðinn væri.
Hayabusan frá Suzuki hefur notið mikilla vinsælda upp á síðkastið enda öflugt og létt hjól, eitt það hraðskreiðasta á markaðnum í dag. Hayabuzan er hjól sem býður upp á mikla möguleika til breytinga og "betrumbóta".
Á alþjóðlegu mótorhjólasýningunni á Long Beach í Kalíforníu í Bandaríkjunum var frumsýnd sérsmíðuð Suzuki Hayabusa af 2008 árgerð sem var hönnuð af Lifted Research Group. L-R-G er betur þekkt fyrir hönnun á tískufatnaði.
Hjólið er mjög nýstárlegt í hönnun, hvítt að lit með grænni rönd (litir sem maður hefur hingað til helst tengt við þýsk lögreglumótorhjól). Á rúðunni og sætinu er að finna einkennismynstur L-R-G auk þess sem búið er að grafa í pústið. Hluti af plastinu er glær til þess að leyfa vélinni betur að njóta sín.
Hjólið er á Pirelli Diablo dekkjum og felgum sem eru gegnsæjar. Þetta gegnsæi sem einkennir hönnunina gefur hjólinu sérstakan "fútúrískan" blæ. Það er ekki spurning að þetta er hjól sem tekið er eftir og ekki hver sem er sem er tilbúinn að aka slíku hjóli. Við skulum samt vona að tískuljón bæjarins fari ekki að aka óreynd um á tjúnuðum Hayabúsum til að passa inn í einhverjar glansímyndir. Þá fyrst fer þetta að verða virkilega hættulegt.
Ante Djindjic, 29 ára gamall mótorhjólamaður frá Króatíu varð fyrir heldur óskemmtilegri reynslu á dögunum. Hann stoppaði við veginn til að kasta af sér vatni þegar eldingu laust niður í hann. Ante var í gúmmístígvélum og því var stysta leiðin í jörð í gegnum liminn.
"Ég man ekkert eftir því sem gerðist. Eina stundina stóð ég og pissaði og þá næstu vaknaði ég á sjúkrahúsi." sagði Ante. "Sem betur fer sögðu læknarnir að þetta myndi ekki hafa nein varanleg áhrif og ég mun geta notað liminn eðlilega innan skamms."
Króm-Hjörturinn
(via TV2)
(myndin er ekki af eldingu sem lýstur í lim mannsins, heldur Eiffel turninn árið 1902. Einhverja hluta vegna fylgdu engar myndir af atburðinum sjálfum með fréttinni.)
Þú getur fengið reglulegar uppfærslur í tölvupósti af þessari síðu með því að skrá netfangið þitt hér að neðan. Þá missirðu ekki af neinu.
Áskriftin er ókeypis og þú getur afskráð þig hvenær sem er.