Mazda hefur birt fyrstu myndir af Taiki, tveggja sæta hugmyndabíl sem frumsýndur verður á bílasýningunni í Tókýó seinna í mánuðinum. Að sögn Mazda er innblástur hönnuðanna sóttur í "hagorom", hin flæðandi klæði sem gerir hinni himnesku mær kleyft að fljúga í japanskri þjóðtrú.
Taiki bíllinn setur línuna fyrir nýja gerð afturdrifinna sportbíla með vélina frammí. Að sögn talsmanna Mazda á bíllinn að endurspegla hugsanlega átt sem hönnun nýrrar kynslóðar Mazda sportbíla mun fara í þeirri viðleitni að skapa sjálfbært samfélag. Nafnið Taiki er japanska orðið yfir andrúmsloft og var markmið hönnunarinnar að skapa sömu sjónrænu áhrif og þegar loft flæðir í gegnum göng. Það hefur tekist alveg ágætlega.
Króm-Hjörturinn
(via Trendhunter.com)


