Bílablogg Krómsins er nú komið með yfir 100 greinar um bíla, mótorhjól og umferðarmenningu. Móttökurnar á bílabloggi Krómsins hafa verið frábærar en á þessum þremur mánuðum síðan Krómið opnaði formlega hafa heimsóknir skipt hundruðum þúsunda. Metdagurinn var 6.500 heimsóknir á einum degi og er Krómið vinsælasti bílavefurinn samkvæmt samræmdri vefmælingu Modernus.
Í september bættum við við bílaspjallinu inn á krom.is en þar geta skráðir notendur spjallað um bíla og farartæki, skipst á góðum ráðum og skemmtilegum hugmyndum um viðhald, jeppaleiðir, mótorsport og fleira. Þar geta notendur líka sett inn ókeypis smáauglýsingar en fyrirsagnirnar af þeim birtast líka hér inn á Krómblogginu (sjáðu -> hérna til hægri).
Fylgist vel með því á næstu er að vænta spennandi nýjunga, bæði inn á Króm blogginu og Króm spjallinu. Þannig að ef þú hefur ekki enn skráð þig inn á spjallið, þá hvet ég þig til að gera það núna.
Í tilefni af þessum merka áfanga ætla ég að bjóða öllum lesendum Krómsins fría áskrift. Það eina sem þú þarft að gera er að skrá netfangið þitt í reitinn hér til hægri og þá færðu tölvupóst í hvert skipti sem það koma inn nýjar greinar. Það kostar þig ekki neitt og þú getur afskráð þig hvenær sem er.
Viva la Kromolution
Króm-Hjörturinn

