Heldur hefur hallað undan fæti hjá kattardýrinu á mörkuðum beggja vegna Atlantshafsins. Svo virðist sem að mikil retro-áhrif í útliti undanfarinna Jagúarbíla hafi haft neikvæð áhrif á söluna og kaupendur verður í eldri kantinum. Jagúar hefur því verið að tapa í samkeppninni við merki eins og BMW og Benz sem hafa yngt mjög útlitið á sínum bílum.
Jagúar XF 2009 er svar kattarins og tilraun til þess að snúa þessari þróun við. Hönnunarteymið var yngt upp og Geoff Lawson sem hafði yfirumsjón með síðustu línu var látinn fara. Meðalaldur hönnuðanna var aðeins 34 ár og þeir ákváðu að hanna bíl sem þeir gætu sjálfir hugsað sér að aka. Afraksturinn er straumlínulagaður XF þar sem einfalt og stílhreint útlit 7. áratugarins var látið ráða för.
Upprunalega reyndi hönnunarteymið að halda sig við hið klassíska "nýrnagrill" en það var bara ekki að gera sig. "Ég er mjög ánægður með að okkur hafi tekist að losa okkur við það," játaði Ian Callum, hönnunarstjóri Jagúar. "Slíkt grill hefði aldrei virkað á bíl sem við vildum gera jafn nýtískulega og XF."
Í staðinn sóttu þeir innblástur í grillið á XJ bílnum frá 1967 með ílöngum framluktum sem brjóta upp hið hefðbundna Jagúar útlit. Hönnun á að vera unglegri og sportlegri með stílhreinu, fáguðu yfirbragði. Innréttingin í bílnum er mjög áþekk þeirri sem er í XK bílnum og talsvert ólík hinum íhaldssömu innréttingum sem verið hafa undanfarin ár.
Það á ekki að fara á milli mála að hér er komin ný kynslóð Jagúarbíla fyrir nýja kynslóð kaupanda. Jagúar veitir heldur ekkert af því að yngja markhópinn upp og blása til sóknar. Þar fyrir utan hefur Ford ákveðið að selja Jagúar með eða án Land Rover þannig að bíll sem fær góð fyrstu viðbrögð frá markaðnum ætti að auka áhugann á að kaupa. Fyrstu bílarnir af 2009 árgerðinni af XF eru væntanlegir á göturnar strax í mars á næsta ári og koma með þremur vélum: 3,0 lítra V6 sem skilar 235 hestöflum, 4,2 lítra V8 vél sem skilar 298 hestöflum auk 416 hestafla V8 ofurvélar. Síðastnefnda vélin hljómar óneitanlega eins og eitthvað sem þarfnist prufuaksturs.
Hér eru myndir af nýja Jaguar XF bílnum. Smellið á myndirnar til að sjá þær stórar:




Króm-Hjörturinn
(via Autoweek.com)
ps. Smá tips fyrir auðkýfinga landsins. Ef þú vilt vera virkilega flottur á því, þá er náttúrulega ekki nóg að kaupa dýrasta Range Roverinn. Það á annar hver maður slíkan jeppa. Þá kaupir maður sér Land Rover verksmiðjurnar og Jagúarinn með!