Ford tilkynnti í gær að þeir væru að innkalla 3,6 milljónir bíla vegna galla í skriðstillinum (e. cruise control). Svo virðist sem búnaðurinn geti valdið íkveikjum. Þetta er í framhaldi af innköllun á um 6 milljónum bíla í janúar síðastliðnum vegna sama vanda.
Samkvæmt Ford eru skráð einhver tilfelli þar sem kviknað hefur í út frá þessum búnaði en engan hefur sakað. Þær tegundir sem um ræðir núna eru: 1998-2002 Ford Ranger, 1992-1997 Lincoln Town Car, 1992-1997 Ford Crown Victoria, 1992-1997 Mercury Grand Marquis, 1993-1998 Lincoln Mark VIII, 1993-1995 Taurus SHO, 1999-2001 Ford Explorer og Mercury Mountaineer, 2001-2002 Ford Explorer Sport, 2001-2002 Ford Explorer Sport Trac, 1992-1993 E150-350 vans, 1997-2002 E150-350 vans, 1993 Ford F-Series pallbílar, 1993 Ford Bronco, 1994 Mercury Capri, 2003-2004 Ford F-150 Lightning og 1995-2002 Ford F53 húsbílar.
Ekki hefur komið í ljós hvort að einhverjir bílar verði innkallaðir hér á landi vegna þessa galla.
Króm-Hjörturinn
(via Autoblog.com)
